Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

vonandi

tekur ráðherra afstöðu með Laugaveginum, þannig að sólin og sunnanvindurinn eigi áfram erindi þar. Hugsið ykkur hvað það yrði mikil andlitslyfting fyrir Reykjavík að gera þessi hús upp þannig að þau yrðu bæði augnayndi og þörf áminning um að Laugavegurinn er gömul gata. Þeir, sem vilja byggja nýtt verða bara að finna sér aðra byggingareiti, þetta snýst um minjar og sögu sem er okkar allra þó það sé Reykvíkinga og nú komi til kasta menntamálaráðherra að varðveita þær. Finnst ykkur annars ekki ótrúlegt að við skulum standa í sömu sporum og þegar Fjalakötturinn, eitt elsta bíó í heimi og merkilegur vettvangur menningar og sögu á Íslandi, var rifinn illu heilli fyrir nærri 30 árum?
mbl.is Ráðherra friði Laugavegshús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

en hvað með Laugaveginn?

Það er útaf fyrir sig gott að húsunum verði bjargað en þetta er ekki góð lausn. Það er götumyndin, heildin sem skiptir máli en ekki bara einstakir hlutar hennar. Ef byggt verður t.d. af álíka hæð og handan götunnar erum við bara komin með enn einn götubútinn sem er svona gljúfur í borg - er það framtíðarsýn okkar fyrir Laugaveginn? Hvað með sólskinið og sunnanvindinn sem nú á greiða leið þarna um?
mbl.is Laugavegshúsunum bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

rjúpan á sér fleiri óvini

en haukinn og manninn. Vísindamenn hafa nú fundið út að á hana sækja smáir en knáir óvinir sem ef til vill reynast henni enn skæðari en rándýrin http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item183354/ . Hún stendur hjarta okkar nærri en ég óttast að ekki verði jafn hægt um vik með rjúpnahreinsun og t.d. hundahreinsun.


hvar er vesturkjördæmi?

ég fylgist svolítið með hvernig gengur upp og niður með meðaltal landshluta í samræmdum prófum, pisakönnunum og svoleiðis. En mér brá nú dálítið að sjá að Námsmatsstofnun birtir niðurstöður úr Vesturkjördæmi - mér vitanlega er það ekki til, ég er allavega búsett í Norðvesturkjördæmi... Nánar tiltekið í Skagafirði en þar eru börnin best (skv. pisa Wink )

takk fyrir Seyðfirðingar

að stöðva lögbrot og eyðingu verðmæta http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item181752/ saga okkar sem þjóðar er ekki bara á bókum hún er líka falin í handverki, húsum og öðrum minjum sem gengnar kynslóðir hafa skilið eftir sig - okkur leyfist ekki að eyða þeim hugsunarlaust fremur en náttúruperlunum.

hræðslan við jafnrétti

tröllríður fjölmiðlum í skammdeginu, margir virðast óttast að valdaskessurnar, ráðynjurnar/ráðskonurnar/ráðfrúrnar taki þá og troði í bleikan eða bláan galla eftir atvikum!

Grínlaust þá er það með ólíkindum hvaða harka hefur hlaupið í nauðvörnina gegn jafnrétti, nýleg dæmi úr umræðunni hér á Íslandi eru menn sem gefa í skyn að ofbeldi gegn feministum sé réttlætanlegt, tala opinberlega um kerlingavæl og gera sig ómerkilega með bröndurum á kostnað kvenna á hátíðastundum.

Því er oft haldið fram að mannfólkið sé haldið djúpstæðri hræðslu við hið óþekkta. Allavega hefur hið óþekkta ástand jafnrétti komið meira við kaunin á mörgum pennanum en hið þekkta ástand misrétti.


fljúgið á Krókinn

og hafið það kósý eina langa helgi á aðventunni. Takið með jólakortin sem á eftir að skrifa og tékkið ykkur inná hótel til að klára dæmið - eða kaupið allt til kortagerðar í Kompunni og sleppið alveg að hugsa um að taka allt í gegn heima hjá ykkur. Kíkið í bakaríið sem er líka kaffihús, farið í göngutúr uppá Nafir til að gera yfirbót útaf öllum kaloríunum sem þið getið keypt á jólahlaðborðum á veitingahúsum bæjarins. Þú átt kost á því að vera í kyrrð frekar en í Kringlunni og bæjarferð er miklu frumlegri en borgarferð!
mbl.is Bæta við flugferð til Sauðárkróks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fleiri tungumál - fleiri hliðar á hverju máli

það er hollt að minnast þess í umræðu dagsins um tungumál að það var löngum talið fólki til tekna, dæmi um hversu veraldarvant og vel að sér það væri að tala fleiri en eitt tungumál. Sjö tungumál var toppurinn fyrir miðevrópskt menntafólk á nítjándu öld - og í dag heldur fólk sig menntað og hefur ekki vald á nema einu tungumáli fyrir utan sitt móðurmál og varla það?

Hvert tungumál er nálgun og því fleiri sem við höfum því fleiri hliðar birtast okkur á hverju málefni. Það að þurfa að orða hugsun sína þannig að hún skiljist er alltaf áskorun, það er ögrun að rata í því sem Heimir Pálsson einn af mörgum góðum íslenskukennurum kallaði málþoku. Málþokan leggst yfir þegar fólk beitir orðum svo umhugsunarlaust að þau glata merkingu sinni, þegar fólk hættir að vera skapandi í málfari en tyggur allt sömu tugguna. Með þannig veganesti úr móðurmálinu nær fólk engum tökum á nýjum tungum heldur, enda er meint færni íslendinga í ensku verulega orðum aukin.

Það eru forréttindi að eiga fágætt tungumál, það er eitt af því sem gerir okkur gull og gersemi að vera ekki búin að brjóta og týna. Hvað annað gerir okkur sérstök í heimsþorpinu?


mbl.is Íslenskan hefur burði til að verða samskiptamál fjölmenningarsamfélags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

málþing til heiðurs Sigríði Sigurðardóttur safnstjóra

Ég er að fara á málþing til heiðurs Sigríði Sigurðardóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga til tuttugu ára. Á meira að segja að flytja nokkur orð en veit varla hvar ég á að byrja né enda því það væri svo margt hægt að segja um Sirrí, hennar störf og hennar miklu hæfileika til að virkja fólk með sér til góðra verka. Þetta gæti orðið langt málþing en örugglega ekki leiðinlegt! Ég er að spá í að hafa þetta lokaorðin í mínu framlagi:

Við getum kallað þá málsvörn hlutanna sem Sirrí er fremst meðal jafningja í einhverjum hversdagslegum fagheitum eins og minjavarsla, rannsóknir, safnastarf, safnfræðsla, kennsla, miðlun menningararfs. Gleymum því samt ekki að þetta er öðrum þræði boðun, boð um að vera með í leiknum, boð um að sjá veisluna, hafa hana í farangrinum og vera þannig í fylgdarliðinu sem ber menningararfinn mann fram af manni á höndum sér. Þetta starf verður aldrei hversdagslegt í meðförum fólks sem vinnur af skilningi á erindi sínu við sögu og samtíma, fólki sem hefur sín markmið skýr fyrir hugskotssjónum og útiljósið alltaf kveikt ef einhvern hlut skyldi bera þar að garði í byljum tímans.

ég vissi það!

Það er bara tímaspursmál hvenær við leggjum heiminn að fótum okkar með Djúpum...
mbl.is Íslenskt nammi vinsælt vestanhafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband