Færsluflokkur: Bloggar
13.2.2008 | 14:52
þarf ekki mótvægisaðgerðir
![]() |
Mótvægisaðgerðir gagnast frekar körlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2008 | 15:18
þorrablót Hóla- og Viðvíkurhreppa
var í Höfðaborg á laugardaginn og ég skemmti mér vel - enda fékk ég að troða upp, herma eftir nágrönnunum og fara með allskonar bull og vitleysu um hagi þeirra, háskólann og hundanna í sveitinni. Þorrablótsnefnd er nefnilega ekki bara ekkert mannlegt óviðkomandi, henni ber skylda til að fylgjast með högum húsdýranna líka. Enda getur það vel farið saman, hamingja manna og dýra.
Hér kemur hver fjölskylda og hennar gestir með sinn þorramat í trogi - stundum slæðist eitthvað óþjóðlegra með í trogið ef útlit er fyrir að gestirnir svelti öðrum kosti. Sést hafa kótelettur, kjúklingalæri og jafnvel flatbökur innan um súra punga, magála og svið!
Eftir borðhaldið og heimalagaða skemmtidagskrá eru tekin upp borðin af dansgólfinu og sett í hliðarsalina og svo er dansað fram á morgun. Höfðaborg er almennilegt félagsheimili með alvöru dansgólfi og það er vel nýtt á svona kvöldi. Eins gott að kvenfólkið er búið að vera að æfa boot camp og karlarnir vanir að glíma við naut og hver annan í bandý þannig að almennt úthald var með betra móti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2008 | 18:30
athyglisverð leið
![]() |
Sáttamiðlun gefur góða raun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2008 | 10:02
Háskólinn á Hólum
![]() |
Furðuverur á faraldsfæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2008 | 11:06
er sennilegt
að allt hafi verið með felldu og ekkert saknæmt skeð ef stúlkan var í "nokkru uppnámi" og jafnvel grátandi?
![]() |
Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.2.2008 | 19:58
heima er gott
kannski best - allavega á degi eins og þessum; djúpur, jafnfallinn snjór og logndrífa. Hólar á kafi svo trén svigna undan snjónum, krakkarnir öll með eplakinnar á fullu að renna sér svo hlátrasköllinn úr Lautinni heyrast um allan staðinn. Við Guðrún Þóra drifum okkur á gönguskíði, þóttumst þurfa að hreyfa okkur eftir frábæran miðdegisdögurð hjá Hrönn (málvöndunarsinninn Björg Baldurs neitar að tala um brunch) en svo þótti okkur ástæða til að bæta upp hugsanlegan kaloríumissi með heitu súkkulaði og rjóma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.1.2008 | 17:56
hefði ekki verið rétt að spyrja fyrst
![]() |
Mikil vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.1.2008 | 22:13
Hólar
skörtuðu sínum fegursta vetrarbúningi í dag, sólin er að læðast niður Hólabyrðuna - komin í miðjar hlíðar og stutt í sólarkaffið. Það snjóaði vel í gær og frábært að komast á gönguskíði, stór hringur í skóginum á gömlu græjunum mínum - engin braut en það er í lagi mín vegna að það sé ekki búið að troða slóðina... Í kvöld var komið glaðatunglskin, stjörnubjart og norðurljósin skreyta himininn - verst hvað þau koma illa út á mynd. Sendi ykkur bara kertaljós í staðinn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.1.2008 | 17:17
nauðsyn
![]() |
Skyndifriðun beitt á Laugavegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2008 | 10:06
meirihlutinn er á móti fyrirætlunum eigenda
eða 69,1%, þ.e. annarsvegar þau 27,6% sem vilja friðun og þau 41,5% sem vilja hús sem falla að núverandi götumynd. Það er semsagt hreinn meirihluti gegn því að gera neðanverðan Laugaveg að þröngri og skuggalegri götu, boru þar sem sólin skín ekki. Sem er ekkert skrýtið.
Ef fyrirhugaðir gestir hótelsins umrædda væru spurðir hvort þeir vildu eyða byggingasögulegum minjum frá 19. öld til að geta gist á reitnum er ég líka hrædd um að þeir yrðu tvístígandi. Það er sannarlega að míga í skóinn sinn að byggja hótel í miðbæ og rífa niður það sem gerir hann sögulegan og sérstæðan í leiðinni. Það kemur enginn gagngert til Reykjavíkur til að gista á hóteli, fólk kemur af því að það á erindi í borgina - meðal annars að njóta gamla borgarhlutans. Rétt eins og við kaupum kynningu ferðaskrifstofa á því hvað aðrar evrópskar borgir státi af fallegum og vel uppgerðum gömlum borgarhlutum - gjarnan miðborgunum og sækjum þær heim frekar en hinar sem misstu andlitið á sínum tíma.
![]() |
Meirihlutinn vill ný hús við Laugaveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007