Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

ekkert nýtt

í þessum ummælum, við erum búin að vera að taka upp regluverk ESB í fjölmörgum málaflokkum bæði vegna þess að ESB er okkar stærsti markaður og vegna Schengen samkomulagsins. Hitt er athyglisvert ef ESB lítur á Ísland sem mikilvægan útvörð vegna hugsanlegra siglingaleiða, spurning hvað það þýðir.
mbl.is „Aðildarferlið vel á veg komið"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

giftur maður

er í áköfum atlotum við einstakling utan hjónabandsins. Hann segir svo frá að hann muni ekki taka frekari þátt í atlotunum, þar sem honum hafi verið látið berast það til eyrna að það gæti valdið hjúskaparslitum. Vinum hans finnst hann algjör hetja fyrir hreinskiptni sína og telja hann hafa verið beittan hótunum og óeðlilegum þvingunum - en ég spyr hvort er maðurinn siðlaus, vitlaus eða hvort tveggja?

Hvað vakir fyrir Ásmundi Einari með makki við stuttbuxnadrengina sem nú leiða flokkana sem hafa alla tíð staðið með auðvaldinu og varið svikamylluna með kjafti og klóm!? Strákana sem hafa undanfarið tafið þingstörf og sýnt þingsköpum djúpa lítilsvirðingu? Þarf hann virkilega að láta segja sér að með því er hann að sýna samstarfsfólki sínu framkomu, sem gæti hæglega leitt til varanlegs trúnaðarbrests?

Ásmundur Einar hefur sterka sannfæringu gegn ESB aðild, en ef hann treysti þjóðinni myndi hann ekki hika við að leggja niðurstöðu aðildarviðræðna í dóm þjóðarinnar. Með því að reyna að koma í veg fyrir aðildarviðræður er hann að hindra að þjóðin geti tekið upplýsta afstöðu.


Trúirðu hverju sem er?

Trúðir þú því þegar Flokkurinn og framsóknarmaddaman sögðu þér að við yrðum ríkust, flottust og mesta fjármálaveldi heimsins -  ef við virkjuðum nóg, byðum heim nógu mörgum stóriðjum og leyfðum mönnum eins og Tryggva Herbertssyni að fitla í friði við flókna fjármálagjörninga? Og ef við kysum þau - því þau stæðu fyrir efnahagslegan stöðugleika!

Trúir þú þeim núna þegar þeir segja þér að við verðum fátækust, aumust og mestu öreigar heimsins? Að við munum aldrei komast útúr þessari kreppu - allt afþví þau eru ekki lengur við völd. Ertu búin að gleyma hverjir keyrðu íslensku efnahagsvélina í botn svo hún bræddi úr sér?

Bifvélavirkjarnir eru á kafi undir húddinu - ég vona bara að þeir komi honum í lag, í dag, að kagginn verði tilbúinn í dag...

  


nei og aftur nei

þetta snýst ekki um öryggi starfsmanna - málið snýst um hvort auðmenn eigi að fá aðra meðhöndlun en almennir skuldarar. Ég segi NEI! Þessir menn  mega fara í greiðsluaðlögun eins og Jón og Gunna en ég krefst þess að þeir fái enga sérmeðferð sem skuldarar. Ég krefst líka rannsóknar á glæfralegum fjármálum þeirra og að þar fái þeir heldur enga sérmeðferð. Þessir menn eru sterklega grunaðir um að hafa svikið þjóðina stórkostlega og þeir verða að sæta rannsókn og þeirri ábyrgð sem þeim ber.
mbl.is Öryggi starfsmanna ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

lífið tekur lit

nýjar kartöflur á boðstólum - nýjar kartöflur beint úr garðinum eru samt með því besta sem ég veit. Soðnar, smjör og graslaukur útá - algjört sumar! Miðað við aukinn áhuga íslendinga á garðrækt eiga margir eftir að njóta árangurs síns erfiðis í haust - fín jarðtenging sem veitir ekki af þessa dagana.
mbl.is Nýjar íslenskar komnar í Melabúðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

enn ein goðsögnin

reynist lygi; Ísland er ekki jafnréttissamfélag, líklega ekki stórasta land í heimi, Íslendingar eru ekki mestu bisnessmenn í heimi, við erum greinilega ekki hamingjusamasta þjóð í heimi. Friðsamleg samskipti byggð á virðingu fyrir mannréttindum innan fjölskyldunnar - eða í þjóðfélaginu, er ekki algild á Íslandi.

Þetta er enn ein vísbendingin um að það þarf endurnýjun gilda. Hávaðabelgir Íslands orga hátt um að við ættum að sleppa við skuldbindingar, að einhver eigi að aflétta af okkur bílaláninu, að við megum ekki ganga í Evrópusambandið nema að fá örugglega meira en aðrar þjóðir útúr því - í stuttu máli að taka meira en við gefum, hvort sem það er í samfélagi þjóðanna eða í einkalífinu. Það er enn útbreidd siðblinda gagnvart ofríki og ofbeldi. Við horfðum uppá gróðapungana stela af þjóðinni og við horfum uppá grjónapungana stela heimilisfriðnum af fjölskyldum sínum en erum við að læra eitthvað af því?  Við þurfum að kveikja á því að siðbót snýst um allt samfélagið, ekki bara Austurvöll. 


mbl.is Fjórðungur orðið fyrir ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundur í málfundafélaginu

Sigmundur Davíð treður upp í hlutverkinu sem Steingrímur hafði áður. Bara svolítið breytt útfærsla á málþófi og málæði. Reyndar má Steingrímur eiga það að hann ber þó virðingu fyrir þingsköpum ólíkt Sigmundi Davíð sem lætur eins og trúðurinn í tólf ára bekk sem vill fá skammir frá kennaranum til að ganga í augun á klíkunni. Mikið skelfing vildi ég að þingmenn hættu þessum loddaraskap í þingsal og færu að vinna eins og fólk.
mbl.is Ekki reynt að verja málstað Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinur er sá er til vamms segir

- það er; bestu vinirnir eru þeir sem eru hreinskilnir um það þegar manni verður á í messunni. Við vorum og erum í mega messi, það er engin leið út nema samningaleiðin og já, í samningum fær hvorugur aðilinn sínar ýtrustu óskir uppfylltar. Þessvegna er auðvelt að segja að samningarnir gætu verið okkur hagstæðari en í samningum er síðasta orðið ekki ÉG VIL heldur hvað getum við náð saman um. Kannski voru bara allir okkar bestu vinir orðnir þreyttir á oflætinu - allavega: Þegar fíflunum fjölgar kringum mann er rétt að líta í eigin barm.
mbl.is Norðurlönd settu skilyrðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

góðar fréttir

íslensk hönnun á leið á erlendan markað með frábærum meðmælum. Tók líka eftir frétt um að verið sé að innleiða íslenska hugbúnaðinn Mentor við skólana í Örebro, enda fín vara þar á ferðinni. Það eru semsé allavega hálmstrá á meintri leið íslensks efnahags og þjóðlífs til andskotans. Kannski rétt að taka eftir svona frétum mitt í allri svartsýninni og hræðsluáróðrinum sem dynur á okkur daglega.
mbl.is Verðlaunaður fyrir gleraugnaumgjarðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband