Leita í fréttum mbl.is

er óþægilegt að vera N1

málefnafátækur stjórnmálamaður og jafnframt fyrrum stjórnarmaður stórfyrirtækis staddur í ræðustól Alþingis og þurfa að standa sig í hreingerningunni? Greinilega, úr því þarf að víkja sér undan að svara eðlilegum spurningum um uppgjör stjórnmálaflokkana við fortíðina og ráðast að persónu fyrirspyrjandans. Þessi svör bera ekki vott um að Bjarni Benediktsson skilji kröfu íslensks almennings um uppgjör við fortíðina.
mbl.is Sakaði Róbert Marshall um ósmekklegheit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

muniði 90% lánin

kosningabrelluna frá Framsókn - það átti heldur ekkert að kosta og vera bara fyrir fólkið í landinu!
mbl.is Niðurfelling þýðir kollsteypu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

guð láti gott á vita

að þingmenn stjórnarandstöðunnar sýni þann þroska að klára þetta fyrsta skref í löngu vinnuferli. Allt málþóf um að tillagan sé illa undirbúin er bara sýndarmennska því þessi tillaga er mjög einföld; að sækja um aðild. Þá og þá fyrst er hægt að fara í þessa vinnu að búið sé að ákveða að sækja um. Þetta er svo sáraeinfalt að það þarf einbeittan þvaðurvilja til að skilja málið öðruvísi.
mbl.is Hægt að ná samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hver samdi fyrirsögnina?

Hlutlaus blaðamaður eða er Mogginn aftur orðinn flokksblað? Þetta er sáraeinföld tillaga og ef þingmönnum er einhver alvara með að láta eitthvað ganga við að leysa málin er bara að taka þetta skref, því þá fyrst er hægt að fara einhenda sér í að koma saman samningstilboði til ESB. Drífið ykkur uppúr sandkassanum, stjórnarandstaða og farið að vinna fyrir fólkið í landinu! Fólk vill öfgalausa umræðu um Evrópumál og láta á það reyna með samningum hvaða áhrif aðild mun hafa.



mbl.is Kastað til höndunum við gerð ESB-tillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gott

nú er bara að vona að þingmenn standi undir þeirri ábyrgð að geta leitt málið til lykta á málefnalegum forsendum, eftir eigin sannfæringu um þjóðarhag frekar en þeim leikreglum sem hingað til hafa gilt í sandkassanum.
mbl.is ESB-tillagan birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hverjir hafa hag af hræðslunni?

útgerðarmenn, núverandi stjórnarandstaða og bændaforystan keppast nú við að mála skrattann á vegginn og fullyrða að allt fari á hausinn ef auðlindir fara í þjóðareigu eða Ísland í ESB. Fyrirgefiði, það fór ekki framhjá neinum að það fór allt á hausinn - án þess að til þessara ráða væri gripið.

Það hefur dunið í eyrum okkar að ekkert væri verið að gera í málefnum heimila og fyrirtækja. Svo kemur í ljós að bankarnir bíða eftir að viðskiptavinir þeirra nýti sér úrræðin sem gripið hefur verið til. Á vefnum www.island.is er langur listi aðgerða til að bregðast við skuldum s.s. hækkun vaxtabóta, frysting lána, breyttar reglur um aðför að skuldurum etc. etc. En eru fjölmiðlar að skoða þessi úrræði, kynna þau og efna til umræðu með að greina þau og reikna í botn? Nei. Þeir eru ekki að því og á meðan er fólk allsekki með á hreinu hvaða ráð eru í stöðunni. Hver hefur hag af þessu? Almenningur? Nei varla. Þeir, sem settu allt á hausinn og kunna illa við að hafa misst völdin? Líklega. 

Í morgunútvarpinu grenjar útgerðarmaður um að hann sé búinn að reikna það út að með fyrningarleiðinni fari útgerðin á hausinn á 7 árum. Er þetta frétt? Er útgerðin ekki að fara á hausinn hvort eð er? Eru fréttastofurnar búnar að kanna forsendurnar og meta áreiðanleika þessarar fullyrðingar og eru þær tilbúnar með alvöru frétt um málið?

Follow the money segja rannsóknarblaðamenn gjarnan - finndu hagsmunina og þeir leiða þig í átt til sannleikans.


fínt

nýr tónn í íslenskum stjórnmálum að fólk viðurkenni að flokkar geti verið ósammála jafnvel um mikilvæga hluti en sammála um aðra jafn mikilvæga hluti. Það væri bara flott að vísa þessu strax til þingsins og láta reyna á að þar greiði þingmenn atkvæði samkvæmt eigin samvisku en ekki flokksræði.
mbl.is Flokkarnir eru ósammála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sigur í dag, vinna á morgun

því verkefnin hlaupa ekkert frá okkur. Jóhönnu er stefnuföst og traust kona sem mun leiða Samfylkinguna og þjóðina í gegnum þessa kreppu. Það er fyrst og fremst mikil vinna að fjölbreyttum og raunhæfum lausnum. Nú er ekki tíminn fyrir kosningabrellur, framtíð okkar veltur á því að það verði unnið mikið, vel og heiðarlega. X-S
mbl.is Sumar og sigur í lofti segir Jóhanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

taktu þátt í uppbyggingunni

með því að kjósa besta verkstjórann sem völ er á og hennar vaska flokk. Samfylkinginn er eini flokkurinn með skýra stefnu um lausn á gjaldeyrisvandanum og verðtryggingarfjötrunum. Veljum raunhæfar lausnir, það eru engar einfaldar heildarlausnir til á þeim vanda sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir. Lausnirnar liggja í mörgum litlum skrefum en raunhæfum skrefum í rétta átt, það er vinna og erfiði fram undan, þá þarf almennilega verkstjórn en ekki loddaraskap!
mbl.is Sögulegar kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ótrúverðugur málflutningur

að Sigmundi Davíð hafi alltíeinu borist minnisblað tveim dögum fyrir kosningar sem sýni að himininn sé að hrynja. Hrunið var í boði Framsóknarflokksins sem rúllaði út rauða dreglinum fyrir efnahagsböðlana sem seldu okkur hugmyndir um stórar lausnir, stórframkvæmdir sem juku á þenslu og 90% lánin sem líka stuðluðu að því að hagkerfið bræddi úr sér. Og nú er enn verið að draga kanínur uppúr hattinum, patentlausnir eins og 20% niðurfellinguna.
mbl.is Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband