Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
31.3.2008 | 15:41
hundalíf fjölmiðlanna
Birgir Guðmundsson varpaði fram þeirri áhugaverðu spurningu á ráðstefnu hér við Háskólann á Hólum um helgina hvort varðhundar almannahagsmuna (þ.e. fjölmiðlar) gelti síður í litlum samfélögum. Þar var hann að velta því fyrir sér hvort héraðsfréttamiðlar væru of nánir umhverfi sínu til að vera varðhundar. Það hvarflaði að mér að etv. væri þetta of þröngur skilningur á hundalífi fjölmiðilsins; lókalmiðillinn er kannski meira heimilishundur en varðhundur og Birgir benti þá á að hann geltir líklega síður að húsbændum sínum. En það gildir ef til vill ekkert síður um stærri fjölmiðla - eða hvað?
Það sem ég var að pæla í sambandi við heimilishundinn var nú ekki bara geltið - hundavinir vita auðvitað að þeir tjá sig á ýmsa aðra vegu. Þeir setja upp hundshaus, urra, bíta, dingla skottinu, flaðra, sleikja - ég get svarið að ég hef séð hund brosa. Þeir hafa þar að auki hin ýmsu hlutverk; sækja, smala, leita, verja, berjast, leiða og fylgja. Það er nú kannski of í lagt að ætla heimilishundinum það hlutverk fjölmiðla sem Birgir nefndi í sínu erindi samfélagssmíði. En væntanlega býr sá draumur að baki því að halda heimilishund að hann verði til gagns og gleði; ánægður, feldstrokinn, tryggur vinur sem dregur fram það besta í fjölskyldunni og heimilislífinu. Það má kannski líkja því einskonar samfélagssmíði að halda hund.
Auðvitað er sú smíð kannski ekki alltaf völundarsmíð, það getur verið að ábyrgðin á hundahaldinu lendi á fárra höndum og af hljótist missætti á heimili en það er náttúrlega ekki hundinum að kenna. Svo er því oft haldið fram að hundur líkist húsbónda sínum. Það er því áleitin spurning afhverju fjölmiðlahundinum er frekar lýst sem vondum hvutta sem hundelti fólk og við er því búist að varðhundur almannahagsmuna gelti, urri og bíti fremur en að hann þefi, grafi og leiti svo dæmi sé nefnt. Að ekki sé nú minnst á þá tilhneigingu fjölmiðlahvuttans að elta skottið á sjálfum sér. Það er sannarlega að fleiru að huga en varðstöðunni í hundahaldi fjölmiðlunar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2008 | 12:20
ótrúlega gaman að kenna
27.3.2008 | 14:23
daprar stundir
í miðborg Reykjavíkur eru greinilega mun fleiri en þær, þegar húsin á horni Lækjargötu og Austurstrætis brunnu. Vilhjálmur þáverandi borgarstjóri kallaði það dapra stund og hafði þetta að segja um viðbrögð og uppbyggingu: Ég legg áherslu á það að það verði gengið hratt til leiks og þetta verði ekki látið drolla í einhver misseri eða ár. Þetta er hjarta bæjarins og þarna verðum við að ganga vel um.
Ég er sammála þessu - en hvað dvelur orminn langa? Hversvegna er ástandið eins og Torfusamtökin lýsa í sinni ályktun? Ætlar borgarstjórn Reykjavíkur að sýna menningu okkar og umhverfi virðingu eða ætlar hún að halda áfram að virða meira hagsmuni stundargróðapunganna?
26.3.2008 | 19:24
eigendur bera ábyrgð
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 16:53
allt í blóma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2008 | 13:13
Geir mun tjá sig
- hvernig ætli sú tjáning verði? Í tali eða tónum, verður hún leikræn? Mun hann tjá þjóðinni ást sína eða bönkunum hug sinn eða verður þessi tjáning kannski ekki á tilfinningalegu nótunum?
Orðalag fréttarinnar hefur líklega vakið hjá mér falskar vonir um að það gerist eitthvað annað og meira en að Geir muni tala við fjölmiðlana.
Blaðamannafundur boðaður að loknum ríkisstjórnarfundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.3.2008 | 18:05
Yacoubian byggingin
er bók, sem kvað hafa notið mikilla vinsælda víða um heim en ég er ekkert ofboðslega hrifin af henni. Ef til vill hafði ég of miklar væntingar til verksins. Það, sem situr eftir hjá mér eftir lesturinn er þó slungið samspil hnignunar byggingarinnar, borgarinnar, þjóðfélagsins og einstaklingsins. Sagan er að töluverðu leyti sögð frá sjónarhóli eldri manns, sem er og var það sem gjarnan er nefnt kvennamaður. Nú hef ég ekki aðgang að frumtextanum en þegar ég var komin aftur í miðja bók fór ég að velta fyrir mér ákveðnu tilbreytingarleysi í málfarinu. Þegar lýsingin "þrýstin brjóst" kom fyrir í þriðja sinn fór ég að efast um stílsnilldina - getur verið að þessi vinsæli höfundur eigi engar aðrar lýsingar á aðdáunarverðum brjóstum? Og það útfrá sjónarhóli sögumanns, sem er ekki einungis mikill áhugamaður um brjóst almennt heldur býr að beinni reynslu og þekkingu af fjöldamörgum brjóstum.
Álitsgjafarnir Kolbrún og Páll í Kiljunni voru þokkalega ánægð með verkið - að því gefnu að þetta sé sápa eða eldhúsróman eins og sagt var hér áður fyrr. Það kom mér reyndar á óvart að hvorugt nefndi að íslenska útgáfan er ekki sérlega vönduð. Í henni eru t.d. innsláttarvillur - sem ætti ekki að þekkjast hjá vandaðri útgáfu.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.3.2008 | 19:07
grönn=flott???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2008 | 12:29
hreyfa sig
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.3.2008 | 15:12
já var það ekki?
Úr því að álit er komið frá útlöndum er þá ekki kominn tími á að taka mark á þeirri gagnrýni að skattleysismörkin hér eru til skammar!
Skattabreytingar hafa komið tekjuhærri hópum til góða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007