Leita í fréttum mbl.is

Yacoubian byggingin

er bók, sem kvað hafa notið mikilla vinsælda víða um heim en ég er ekkert ofboðslega hrifin af henni. Ef til vill hafði ég of miklar væntingar til verksins. Það, sem situr eftir hjá mér eftir lesturinn er þó slungið samspil hnignunar byggingarinnar, borgarinnar, þjóðfélagsins og einstaklingsins. Sagan er að töluverðu leyti sögð frá sjónarhóli eldri manns, sem er og var það sem gjarnan er nefnt kvennamaður. Nú hef ég ekki aðgang að frumtextanum en þegar ég var komin aftur í miðja bók fór ég að velta fyrir mér ákveðnu tilbreytingarleysi í málfarinu. Þegar lýsingin "þrýstin brjóst" kom fyrir í þriðja sinn fór ég að efast um stílsnilldina - getur verið að þessi vinsæli höfundur eigi engar aðrar lýsingar á aðdáunarverðum brjóstum? Og það útfrá sjónarhóli sögumanns, sem er ekki einungis mikill áhugamaður um brjóst almennt heldur býr að beinni reynslu og þekkingu af fjöldamörgum brjóstum.

Álitsgjafarnir Kolbrún og Páll í Kiljunni voru þokkalega ánægð með verkið - að því gefnu að þetta sé sápa eða eldhúsróman eins og sagt var hér áður fyrr. Það kom mér reyndar á óvart að  hvorugt nefndi að íslenska útgáfan er ekki sérlega vönduð. Í henni eru t.d. innsláttarvillur - sem ætti ekki að þekkjast hjá vandaðri útgáfu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þau hafa ef til vill látiðl sig hafa það að fara yfir bókina á hundavaði, og þess vegna ekki áttað sig á þvi sem aflaga fór.  Ekki samt mjög vandað ef svo er. En ég þekki ekki þessa bók.  Les voða lítið þessa dagana. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2008 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband