19.2.2008 | 10:26
frábært!
Öryggi ferðafólks er lykilatriði í gæðum ferðaþjónustu, hvort sem um er að ræða almenningssamgöngur eða ævintýraferðir á jökla og tinda. Þessi frétt sannfærir mig enn frekar um að við eigum að hafa skyndihjálp sem fastan lið í náminu hér við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum eins og verið hefur. Einhverjir setja kannski spurningarmerki við að það sé ekki nógu "akademískt" fyrir háskólanám en ég blæs á það; okkar nemendur eiga að þekkja og skilja öryggismál ferðaþjónustunnar allt frá hugmyndafræðinni og áætlanagerðinni til þess að vita hvað á að gera á vettvangi til að gera aðstæður sem öruggastar og geta brugðist rétt við, hvort sem það er í matsal, í bílferð, hestaferð eða hvar sem er. Það eiga allir starfsmenn í ferðaþjónustunni að hafa þessa þekkingu og færni, ekki bara fólkið í framlínunni heldur líka þeir sem stjórna fyrirtækjunum því þeir þurfa líka að hafa skilning á mikilvægi málsins. Meiri skyndihjálp segir konan sem fær líkamleg einkenni við að það eitt að hugsa um áverka annarra - en mér fer fram, það leið ekki yfir mig á síðasta skyndihjálparnámskeiði, sem minnir mig á; það eru örugglega meira en tvö ár síðan síðast...
Blés lífi í farþega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Menntun og skóli | Facebook
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Skyndihjálp er nauðsýnleg í ferðaþjónustu. Ég hef farið á nokkur námskeið bæði í þegar ég var í Björgunarsveitinni og líka var skyndihjálp tekinn annað hvert ár hjá Hópbílum þegar ég var þar. Þetta er hlutur sem allir ættu að kunna því það er aldrei að vita hvenær þarf á þessari þekkingu að halda.
Þórður Ingi Bjarnason, 21.2.2008 kl. 10:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.