7.9.2007 | 15:27
göngur og réttir
ég segi nú bara eins og skáldið forðum: Eins mig fýsir alltaf þó, aftur að fara í göngur... Það er á morgun sem bændur og búalið í Viðvíkursveit og Hólahrepp hinum forna smala. Ég er ekki bóndi og tæplega búalið, en fæ samt að smala. Það er ótrúlega skemmtilegt, jafnvel í fyrra þegar við riðum frameftir með húðaslagveðursrigningu í bakið og hún breyttist í slyddu þegar ofar dró... Mér varð hugsað til forfeðra okkar og formæðra. Úr því þau höfðu þetta oftast af - þá var mér engin vorkunn á stríðaldri meri, stríðalin sjálf og í skjólfötum sem þekktust ekki þá. Svo hitnar manni náttúrlega af smalaæðinu! Við Grána förum fram á Kolbeinsdal á eftir og vonandi á Heljardal á morgun. Séð af Elliða yfir Kolbeinsdal í Heljardal á sumardegi.
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Vonandi verður þokalegt veður á morgun. Ég ætla að fylgjast með þegar við laufskála.
Þórður Ingi Bjarnason, 7.9.2007 kl. 16:20
Þú mátt alveg segja okkur hvenig gekk allt saman, smá smalafréttir og jafnvel myndir.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2007 kl. 12:17
Það var nú ekki hægt að taka mikið af myndum - ég var alltof upptekin að smala. Við þurfum að reka féð yfir Kolbeinsdalsána sem er jökulá (kemur af Tungnahrygg) og víða straumhörð. Það krefst eiginlega óskiptrar athygli og einbeitingar - ekkert pláss fyrir ljósmyndara!
Guðrún Helgadóttir, 14.9.2007 kl. 13:49
ókey mín kæra skil þig. Þetta hefur nú samt verið ævintýri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.9.2007 kl. 17:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.