21.3.2007 | 14:20
hús með sál - eða allavega hljóð
Það er bara eitt sem getur orðið óþægilegt við vinnuaðstöðuna mína; þessar fáu stundir þegar húsið tekur undir með vindinum og ýlir mjóum rómi um napran vind á glugga. Það er reyndar meiri rödd í þessu húsi og það geymir sögur um lífið hér í nærfellt heila öld. Skrifstofan mín var áður heimavistarherbergi og kallað Mosfell, þar voru mest 4 strákar hefur mér skilist af mönnum sem hafa komið að vitja fornra slóða. Annars eru alltof miklar eyður í sögu staðarins þegar kemur að almúganum; skólapiltum, vinnufólki, ráðsmönnum og ráðskonum - það voru nú ekki bara biskupar hér á Hólum.
Viti konur og menn - haldiði ekki að húsið hafi steinhætt að væla rétt á meðan ég var að blogga þetta. Það er náttúrlega svo vant að virðingu sinni að það lætur þennan tón ekki um sig spyrjast! Svo gerist þetta nú svo sjaldan, hér er skjól í norðanáttinni og sunnanvindurinn sem getur orðið hvassastur á vorin og haustin er bara hnjúkaþeyr úr Tröllaskaganum.
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.