Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

þáverandi viðskiptaráðherra

var formaður Framsóknarflokksins, Jón Sigurðsson, ekki gleyma hvar ábyrgðin liggur. 90% lánin sem nú eru að sliga fólk voru líka tillaga Framsóknarfloksins sjá http://www.hrifla.is/?newsID=2179
mbl.is Gátu sparað 444 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já enda er það uppskrift að misrétti

niðurfelling í prósentum hyglar alltaf þeim sem eru með mestu skuldirnar - sem væntanlega er vegna þess að þeir hafa verið að kaupa dýrustu eignirnar, hafa komið best útúr greiðslumati. Hér er orð að viti um þessa tillögu http://www.deiglan.com/index.php?itemid=12478

Og svo er rétt að skoða hvað er verið að gera áður en menn tapa sér alveg í heimsendaspádómum sjá www.island.is


mbl.is Hafnar flatri niðurfærslu skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opna stjórnsýslu og öfgalausa umræðu takk!

Nú er ekki tíminn fyrir hræðsluáróður, skyndilausnir og pólitísk yfirboð. Það er ömurlegt að horfa uppá stjórnmálamenn sem virðast ekki skilja að það gengur ekki lengur. Í vetur varð hugarfarsbreyting hjá íslensku þjóðinni. Fólk sá að keisarinn var ber og heimtaði uppgjör við ranga stefnu og siðlaus vinnubrögð. Það uppgjör er rétt að byrja og á þeim grunni verður uppbyggingin.

 

Nú er verið að stíga mikilvæg skref; í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins getur almenningur t.d. fylgst með því hvað er á dagskrá í ríkisstjórninni. Hingað til hafa þetta verið hálfgerðar leynisamkomur en nú liggur dagskrá hvers ríkisstjórnarfundar fyrir á http://www.stjornarrad.is/rikisstjorn/

 

Við erum búin að vera með stefnu um rafræna stjórnsýslu og upplýsingalög í fleiri ár - en það þurfti hreina vinstristjórn í svo einfalda aðgerð að búa til vefsíðu fyrir almenning að fylgjast með ríkisstjórninni.


ok

þetta segjast einhverjir nafnlausir aðilar hafa sagt en stóra spurningin er hversvegna gerði Seðlabankinn ekkert?
mbl.is SÍ: Stefnt í ógöngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

bankarán

er það ekki það sem Hreinn Loftsson er að lýsa? Það má nú ekkert á milli sjá hvort meiri ábyrgð liggur hjá Framsóknarflokki eða Sjálfstæðisflokki á því hvernig einkavæðingin fór úr böndunum - enda var hún manna á milli kölluð einkavinavæðing.
mbl.is Lentu í höndunum á ævintýramönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

í áttina

- mætti gerast hraðar, en merkilegt að nú finnst sjálfstæðismönnum allt ganga of hægt og eru í óða önn að mála skrattann á vegginn en fyrir áramót lá þeim lítið á að grípa til aðgerða. Það eru engar einfaldar skyndilausnir í boði, við erum í bullandi erfiðleikum en það er lítið vit í að afneita öllum batamerkjum.
mbl.is Talsvert dregur úr verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jæja þetta mjakast

þrátt fyrir heimsendaspár manna eins og Tryggva Herbertssonar. Nú er hann í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og lýsir því yfir að ef við tökum ekki Framsókn á þetta og afskrifum flatt 20% skulda strax þá frjósi hér allt í hel. Nú liggi lífið á að bregðast hratt við! Er þetta ekki sami maðurinn og var sérlegur ráðgjafi Geirs H. Haarde við að gera ekki neitt?
mbl.is Verulegur verðbólgusamdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hverjir gerðu það mögulegt?

Sjálfstæðis- og framsóknarmenn sem gáfu bankana vildarvinunum, gerðu bremsurnar í eftirlitsstofnunum óvirkar og fórnuðu hagsmunum íslensks almennings á frjálshyggjualtarið - munum það!
mbl.is Íslands sjálftökumenn hafa leikið lausum hala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

nú?

var eitthvað annað í spilunum? Eða er Framsókn að sýna sitt rétta eðli - að þá langar bara í sama gamla farið með Sjálfstæðisflokknum? Það væri svo sem eðlilegt að þeir skriðu saman aftur sem voru höfundar að handritinum um útrás, oflæti og hrun - eða rán eins og vinkona mín kallar það sem flestir kalla bankahrun. Það var bankarán, fyrst voru bankarnir afhentir gæðingunum, þeim gefið frítt spil og svo borgar þjóðin skuldirnar!
mbl.is Iðrast stuðnings við stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

athyglisvert

og góð þróun. Íslensk náttúra og samfélag ber ekki fjöldaferðamennsku en á mikla möguleika sem áfangastaður fyrir þá sem vilja stoppa lengur og vera virkir í fríinu sínu hvort sem það er í útivist og náttúruupplifun eða menningarlífinu. Svo er hér úrval af flottri hönnun, myndlist, mat, tónlist og bókum sem ferðafólk hefur áhuga á.


mbl.is Færri ferðamenn sem eyða meiru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband