Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

hvernig var þetta nú aftur - vilji er allt sem þarf?

Það er að koma illilega í ljós að það að leggja fram nýtt frumvarp til jafnréttislaga á 8. mars var fyrst og fremst kosningainnlegg hjá hæstvirtum félagsmálaráðherra. Dagurinn var varla liðinn, sem byrjaði á að kynna frumvarp sem þverpólitísk sátt væri um þegar málið var allt í einu komið á frumstig þegar Samfylkingin fór að þrýsta á um að það yrði bara tekið og afgreitt!

Í morgun var talsmaður Framsóknarflokksins hinsvegar að tala fyrir því að auðlindaákvæði stjórnarskrárinnar yrði samþykkt þó fyrirvarinn væri stuttur - er meiri sátt um það en aukið jafnrétti?

Viðskiptablaðið gaf tóninn; er ekki bara allt í lagi er spurt í leiðara þess, eru þessi gömlu jafnréttislög ekki bara fín? Með öðrum orðum er nokkuð mál að mismuna helmingi þjóðarinnar með 16% launamun? Viðskiptablaðið óttast aukið valdsvið Jafnréttisstofu til að framfylgja því að fá upplýsingar til að byggja á úrskurði sína um hvort jafnréttislögum sé hlýtt - þá hrikalegu kröfu að erindum stofnunarinnar sé svarað! Þetta er bara eins og að skattstofur fái að afla gagna um hvort skattalög séu brotin. Vá þvílík áþján fyrir atvinnulífið! Það er alger skammsýni af Viðskiptablaðinu að fagna ekki þeirri byltingu sem yrði í atvinnulífinu og þjóðlífinu öllu ef jafnrétti kynjanna yrði meira en tómur lagabókstafur.

Nú reynir á hvaða stjórnmálaflokkar hafa jafnréttisstefnu sem stenst!


ótrúlegt!

Það er alveg einstaklega skondið fyrir okkur skagfirðinga að horfa uppá Vg slá sig til riddara á stefnu sinni í umhverfismálum. Þetta stjórnmálaafl var í meirihluta í sveitarstjórn hér í Skagafirði í fjögur ár, allt síðasta kjörtímabil og áorkaði engu, takið eftir: ENGU í umhverfismálum. Það var ekki fersentimeter friðaður í Skagafirði á tímabilinu og þessi flokkur bar aldrei fram tillögu um það sem þeir halda fram að sé þeirra helsta baráttumál; friðun Jökulsánna.

Þátttöku í Staðardagskrá 21 var hætt, ekkert var gert í að koma á flokkun sorps, engar lausnir á þeim vanda að sorpurðunarsvæði Sauðárkróks er á undanþágu. Það var dálítið talað um hunda - og kattahald í þéttbýli í umhverfisnefnd undir forystu þessa "umhverfisflokks". Áhugasamir geta kynnt sér fundargerðir sveitarstjórnar og nefnda í Skagafirði á www.skagafjordur.is - að þeim lestri loknum ættu umhverfissinnar alvarlega að spyrja sig hvort Vg er umhverfissinnaður flokkur á borði eða bara í orði.


mbl.is „Vísbendingar um að VG svari eftirspurn eftir framboði umhverfisverndarsinna"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

beint frá býli - betri tíð með blóm í haga

blhladÞað er mikil vakning hér á vesturlöndum í matarmenningu, bæði áhugi á bættri heilsu með hollu mataræði og gagnvart því að njóta matar. Það er aukinn skilningur á nauðsyn þess að varðveita menningararfinn sem felst í matarhefðum, hráefni, vinnslu og matreiðslu. Félagið Matur-saga-menning sjá www.matarsetur.is er dæmi um þetta. Nú er að bætast nýtt blóm í flóruna fyrir áhugafólk um íslenskan mat www.beintfrabyli.is sem snertir líka umræðuna um íslenskan landbúnað og tengslin við neytendur. Þetta er flott framtak! Ég er alveg á því að íslenskir bændur eiga að fá að selja sína vöru beint til neytenda, milliliðalaust. Að endingu vil ég taka fram að bleikjan er besti fiskurinn!

« Fyrri síða

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband