9.12.2008 | 13:46
við, fólkið?
Ég geri athugasemd við það að grímuklæddir, nafnlausir einstaklingar kalli sig fulltrúa fólksins. Fólkið í lýðræðisríki þorir að taka ábyrgð á orðum sínum og gerðum, það þorir að horfa framan í hvert annað og tjá sínar skoðanir, það þorir að blogga undir nafni og það felur ekki andlit sitt í mótmælum. Það þarf þess ekki. Það er hinsvegar fólk í heiminum, líklega enn fleira fólk, sem raunverulega setur líf og limi að veði við að tjá skoðanir sínar. Það fólk býr ekki við óvinsæla ríksstjórn, það býr við harðstjórn. Við dekurrófurnar eigum ekkert með að líkja okkur við þá sem raunverulega búa við skoðanakúgun, örbirgð og harðstjórn. Með því erum við bara enn einu sinni að sýna fáfræði okkar og hroka gagnvart umheiminum.
Mótmæli við Ráðherrabústaðinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Kannski eru sumir þarna á meðal t.d í háskóla og vita sem er að það er eins gott að hafa verið þægur og hlýðinn til að fá vinnu síðar...og vilja þess vegna ekki þekkjast. Það vita allir sem vilja vita að þannig virka hlæutir á íslandi. Þó enginn vogi sér að segja það upphátt að harðstjórnin hér felst í klíkuskap og einkavinavæðingu. Svo einfalt. Og nú má sjá grímulaus valdið að störfum.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.12.2008 kl. 15:07
Þessi mótmæli eru farinn að ganga of langt. Lætin á Alþingi í gær og svo við ráðherrabústað í dag. Það vinnst ekkert með svona látum.
Þórður Ingi Bjarnason, 9.12.2008 kl. 16:19
Katrín, það eru einmitt heybrækurnar sem þú lýsir sem grafa undan lýðræðinu. Það er tími til kominn á Íslandi að fólk tali hreint út - í eigin nafni og standi með sjálfu sér. Til þess þarf fólk að taka hiklaust og persónulega þátt í pólitík án þess að fela sig - hvort sem það er nú bakvið grímu, dulnefni eða bankaleynd. Það að axla ábyrgð er að persónugera hlutina með því að setja sína persónu í orsakasamhengið - viltu banna það nafnlausi kreppukall? Úr því að þú treystir þér ekki til að standa á bakvið það sem þú skrifar hlýtur þú að skilja ósköp vel hvað aðrir eru lítið fyrir að standa við sín orð.
Guðrún Helgadóttir, 9.12.2008 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.