5.7.2008 | 18:52
lúpína
er umdeild jurt en hún hefur unnið á í mínum huga eftir því sem ég kynnist henni nánar. Í fyrsta lagi er mér hlýtt til hennar af því systir mín hafði svo gott af lúpínuseyði þegar hún var í meðferð við krabbameini. Og svo er ótrúlega skemmtilegt að ríða gegnum lúpínubreiðu. Í fyrrakvöld riðum við Helgi niður í Tungu (milli Kolbeinsdalsár og Hjaltadalsár) um sólarlag á þá verður liturinn auðvitað ótrúlegur að ekki sé tala um ilminn. Svona er þetta, nýir gestir í náttúrunni verða smám saman heimakomnir hvort sem er um að ræða jurtir eða dýr sem ná hér fótfestu.
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Mikið afskaplega er ég mikið sammála þér í þessu máli. Þetta er alveg óhemju falleg og nytsöm jurt
kveðja Rafn.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.7.2008 kl. 19:13
En vont þegar hún breiðir sig yfir náttúrulegan lággróður sem fyrir er og dregur þannig úr líffræðilegri fjölbreytni og afmáir einkenni landsins. Ég óttast að við munum standa frammi fyrir alvarlegum lúpínuvanda á næstu 10-20 árum!
Stefán Gíslason, 9.7.2008 kl. 08:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.