3.4.2008 | 10:10
ekki láta snuða þig
af verslunareigendum sem eru komnir á undan sjálfum sér í verðhækkunum. Ég fór inní sjoppu um daginn og hefði eflaust ekki fattað neitt ef ég hefði ekki verið búin að týna verð vörunnar í klinki - en verðið sem starfsmaður gaf mér upp var 50 kalli hærra þegar varan var stimpluð inn. Ég benti á verðmerkinguna í hillunni, starfsmaðurinn talaði við vakstjóra en niðurstaða þeirra var að verðið "í tölvunni" gildi. Þetta er dæmi um ólöglega viðskiptahætti skv. lögum nr. 2005. Sjá nánar á vef Neytendastofu þar sem kemur fram að vörur skuli verðmerkja greinilega þannig að neytandinn sjái - neytandinn sér ekki "verðið í tölvunni". Við erum neytendurnir og við verðum að veita versluninni aðhald - ekki veitir af núna þegar verðhækkanir dynja á okkur.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Af mbl.is
Íþróttir
- Alfreð Finnbogason: Takk fyrir allt
- Leikur ekki meira á keppnistímabilinu
- Ísland í þriðja styrkleikaflokki fyrir HM
- 18 ára samstarfi lokið
- Annaðhvort að hætta að drekka eða að deyja
- Þurfti sturtu eftir hörkuleik
- Úr Árbænum í Garðabæinn
- Eyjamenn kærðu framkvæmdina á Ásvöllum
- Skortur á miðvörðum sem geta komist í landsliðsklassa
- Einn sá vinsælasti hættir á samfélagsmiðlum
Athugasemdir
Það verð sem gildir er verð sem er í hillu. Ég var að versla í verslun um daginn og það munaðu 1000 kr hvað kom fram á kassa og hvað stóð á hillu. Ég benti á þetta og þá kom í ljós að tveir miðar voru á vörunni í hilli annar með lægra verði hinn 1000kr dýrari. Þá hafi gleymst að taka alla miða eftir útsölu. Ég sagði að ég borgaði ekki meira en það sem ég sá á hillu og þegar verslunarstjóri kom þá sagði hann að lægra verðið yrði að gilda.
Þórður Ingi Bjarnason, 3.4.2008 kl. 13:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.