27.3.2008 | 14:23
daprar stundir
í miðborg Reykjavíkur eru greinilega mun fleiri en þær, þegar húsin á horni Lækjargötu og Austurstrætis brunnu. Vilhjálmur þáverandi borgarstjóri kallaði það dapra stund og hafði þetta að segja um viðbrögð og uppbyggingu: Ég legg áherslu á það að það verði gengið hratt til leiks og þetta verði ekki látið drolla í einhver misseri eða ár. Þetta er hjarta bæjarins og þarna verðum við að ganga vel um.
Ég er sammála þessu - en hvað dvelur orminn langa? Hversvegna er ástandið eins og Torfusamtökin lýsa í sinni ályktun? Ætlar borgarstjórn Reykjavíkur að sýna menningu okkar og umhverfi virðingu eða ætlar hún að halda áfram að virða meira hagsmuni stundargróðapunganna?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þetta er flott ályktun hjá Torfusamtökunum. Það er langt síðan ég heyrði einmitt um svona aðferðir gróðapunga. Vinur minn sem á hús á Njálsgötu sagði mér að svona aðferðum hefði verið beitt í kring um hann, til að koma fólki út, m.a. leigja fíklum og ofbeldisfólki. Þetta er óþolandi alveg hreint. Og þarf að koma þessum mönnum undir lás og slá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 15:22
Vilhjálmur er búinn að koma í sjónvarpið aftur. Hvað eru annars margir mánuðir frá því hann grét brunann á horninu - íklæddur hjálmi? Torfusamtökin og Miðbæjarsamtökin mega hafa sig öll við. Annars hafa sumir fjölmiðlar kannski að undirlagi þessara samtaka staðið sig þokkalega að lýsa ástandinu.
María Kristjánsdóttir, 27.3.2008 kl. 21:01
Ástandið í Reykjavík er slæmt. Ég keyrði um þessa ljótu borg Reykjavík í þessari viku og skoðaði meðal annars þessi hús sem er verið að tala um á Hverfisgötu og Bergastaðarstræti þetta er hörmung að sjá og Borgarstjórn verður að taka á þessum málum með festu og skikka eigendur þessara húsa að ganga vel frá þeim. Besta lausnin er að endurgera þau í upprunalega mynd og það strax.
Þórður Ingi Bjarnason, 28.3.2008 kl. 07:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.