16.3.2008 | 18:05
Yacoubian byggingin
er bók, sem kvað hafa notið mikilla vinsælda víða um heim en ég er ekkert ofboðslega hrifin af henni. Ef til vill hafði ég of miklar væntingar til verksins. Það, sem situr eftir hjá mér eftir lesturinn er þó slungið samspil hnignunar byggingarinnar, borgarinnar, þjóðfélagsins og einstaklingsins. Sagan er að töluverðu leyti sögð frá sjónarhóli eldri manns, sem er og var það sem gjarnan er nefnt kvennamaður. Nú hef ég ekki aðgang að frumtextanum en þegar ég var komin aftur í miðja bók fór ég að velta fyrir mér ákveðnu tilbreytingarleysi í málfarinu. Þegar lýsingin "þrýstin brjóst" kom fyrir í þriðja sinn fór ég að efast um stílsnilldina - getur verið að þessi vinsæli höfundur eigi engar aðrar lýsingar á aðdáunarverðum brjóstum? Og það útfrá sjónarhóli sögumanns, sem er ekki einungis mikill áhugamaður um brjóst almennt heldur býr að beinni reynslu og þekkingu af fjöldamörgum brjóstum.
Álitsgjafarnir Kolbrún og Páll í Kiljunni voru þokkalega ánægð með verkið - að því gefnu að þetta sé sápa eða eldhúsróman eins og sagt var hér áður fyrr. Það kom mér reyndar á óvart að hvorugt nefndi að íslenska útgáfan er ekki sérlega vönduð. Í henni eru t.d. innsláttarvillur - sem ætti ekki að þekkjast hjá vandaðri útgáfu.
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þau hafa ef til vill látiðl sig hafa það að fara yfir bókina á hundavaði, og þess vegna ekki áttað sig á þvi sem aflaga fór. Ekki samt mjög vandað ef svo er. En ég þekki ekki þessa bók. Les voða lítið þessa dagana.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2008 kl. 08:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.