13.3.2008 | 12:29
hreyfa sig
er náttúrlega göfugt markmið - ekki síst að hreyfa sig útivið sérlega fyrir konur á mínum aldri. Það eru hæg heimatökin hér, þarf ekki annað en að fara á bakvið hús og ég er komin útí skóg og uppí fjall á engri stund. En það er svo skrýtið að tíminn sem ég þarf ekki að eyða í umferðinni til og frá vinnu hann virðist ekki nýtast sem tómstundir - ég er bara þess lengur í vinnunni! Þetta er náttúrlega ekki hægt, enda er kominn verulegur félagslegur þrýstingur á að bæta sig; vinnufélagarnir með sundklúbb og taka þátt í Lífshlaupinu og strákurinn minn með æfingaprógramm í gangi fyrir mig. Svo eru mættir tveir fulltrúar þrýstihópsins hrossin mín á svæðið, fór á bak Júní í fyrsta sinn síðan í fyrra í gærkvöld. Það lofar góðu í dag - strengirnir koma á morgun
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þarf endilega að fara að taka mér tak.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2008 kl. 13:29
Verum duglegar um páskana - ég ætla einmitt að reyna að komast á hestbak - er búin að vera dugleg að hreyfa mig inni - en er að verða leið á því. Mitt ráð er að svona dagsdaglega er gott að byrja daginn á hreyfingu - finnst þér ekki skemmtileg svona ráð.....
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 14.3.2008 kl. 07:33
Koma svo Guðrún!
Sigríður Gunnarsdóttir, 14.3.2008 kl. 10:19
Takk fyrir hvatninguna elskurnar mínar - var að koma af hestbaki og lífið er harla gott í augnablikinu!
Guðrún Helgadóttir, 14.3.2008 kl. 18:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.