21.2.2008 | 17:58
nokkurt ónæði
getur stafað af nátthröfnum. Einhverntíma heyrði ég þá sögu en sel hana ekki dýrar en ég keypti hana að þegar Halldóra Bjarnadóttir, sú kjarnakona, dvaldi í hárri elli á Héraðshælinu á Blönduósi hafi það orðið að ráði að ritvélin hennar gisti á vaktherberginu á nóttunni. Halldóra fylgdist vel með og þurfti mörgum að skrifa til að leggja orð í belg sínum málefnum til framdráttar. Það gat því verið liðið fram á nótt þegar hún sat enn við og hamraði á ritvélina sína - sem rændi nærstadda svefni hinna réttlátu. Þar sem hún var svo svefnlétt fór nú svo að erindi hennar höfðu þær aukaverkanir að verða fólki til ama og jafnvel tjóns, þó þau væru stíluð í öðrum tilgangi. Það er því líklega að mörgu leyti varhugavert að vera að göltra langt fram á nætur við skriftir, það er óvíst að nokkuð vitlegt komi útúr því.
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þetta er mjög pent orðað og er ég hjartanlega sammála.
kv. Guðbjörg
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 21.2.2008 kl. 18:17
Afskaplega ertu fim í fingrum ;)
Hjartanlega sammála þér.
Hrönn Sigurðardóttir, 21.2.2008 kl. 20:57
Sumir eiga ef til vill sínar bestu stundið við ritvélina (tölvuna) á nóttunni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.2.2008 kl. 14:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.