10.1.2008 | 10:06
meirihlutinn er á móti fyrirætlunum eigenda
eða 69,1%, þ.e. annarsvegar þau 27,6% sem vilja friðun og þau 41,5% sem vilja hús sem falla að núverandi götumynd. Það er semsagt hreinn meirihluti gegn því að gera neðanverðan Laugaveg að þröngri og skuggalegri götu, boru þar sem sólin skín ekki. Sem er ekkert skrýtið.
Ef fyrirhugaðir gestir hótelsins umrædda væru spurðir hvort þeir vildu eyða byggingasögulegum minjum frá 19. öld til að geta gist á reitnum er ég líka hrædd um að þeir yrðu tvístígandi. Það er sannarlega að míga í skóinn sinn að byggja hótel í miðbæ og rífa niður það sem gerir hann sögulegan og sérstæðan í leiðinni. Það kemur enginn gagngert til Reykjavíkur til að gista á hóteli, fólk kemur af því að það á erindi í borgina - meðal annars að njóta gamla borgarhlutans. Rétt eins og við kaupum kynningu ferðaskrifstofa á því hvað aðrar evrópskar borgir státi af fallegum og vel uppgerðum gömlum borgarhlutum - gjarnan miðborgunum og sækjum þær heim frekar en hinar sem misstu andlitið á sínum tíma.
Meirihlutinn vill ný hús við Laugaveg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þessar reiknikúnstir sem þú iðkar þarna voru í mínu ungdæmi kölluð "hundalógík"
Sveinn Ingi Lýðsson, 10.1.2008 kl. 10:56
Eins og stendur í fréttinni -> "79,8% tóku afstöðu af 600 manna úrtaki"
Getum við þá ekki sagt miðað við "nýjustu" reiknikúnstir, að 79,8% af 600 manns vilji hafa einhverjar byggingar á reitnum Laugavegur 4-6 ?
600 manns af 118 þús reykvíkingum er um 0,51% reykvíkinga.
og 600 manns eru tæplega 0,2% af þjóðinni.
Eigum við ekki bara að henda þessu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu ?
Ég er ekki á því, að þessi hús séu mesta prýði höfuðborgarinnar, og held reyndar að þau verði það aldrei.
Búið að vera í niðurníslu síðustu 70 árin, og enginn kvartað fyrr en nú, þegar það á að rífa þessa útikamra.
Ingólfur Þór Guðmundsson, 10.1.2008 kl. 14:34
Já Ingólfur, það var líka farið háðulegum orðum um Bernhöftstorfuna á sínum tíma. Enda var hún ekki bæjarprýði í höndunum á eigendum sem höfðu ekki áhuga á að halda húsunum við. Vildirðu vera án þeirra í dag?
Guðrún Helgadóttir, 10.1.2008 kl. 14:57
Það á að varðveita þessi hús. Ef við rífum öll gömul hús til að geta byggt stórhýsi þá erum við um leið að henda frá okkur menningarminjum. Saga þjóðarinnar og byggingalist sést á þeim húsum sem við höfum byggt gegnum tíðina. Við eigum að gera við þessi hús þannig að þau verði Laugaveiginum og Reykjavík til sóma þannig getum við fengið Erlenda ferðamenn til að sjá gömlu húsin í Reykjavík.
Þegar er farið erlendis þá er oft merkilegast að komast í gamla hlutann í þeim borgum sem farið er til, eigum við Íslendingar ekki geta sýnt ferðamönum okkar gamla hluta sem er um leið aðalverslunargatan á íslandi.
Stórt Hótel á þessum reit myndi skemma Laugaveginn þar sem enginn aðstaða er fyrir svoleiðis starfsemi á þessum stað.
Þórður Ingi Bjarnason, 10.1.2008 kl. 17:07
Og borga eigendum lóðanna sviminháar bætur?
Guðrún Magnea Helgadóttir, 10.1.2008 kl. 20:37
Ég vil halda í eins mikla sögu af húsum Íslands eins og hægt er hvort sem þau verða á sínum upphafsstað eða annars staðar:
Það er alveg ljóst að það marg borgar sig - engir kumbaldar sem byggðir eru upp á byggingamagnið koma betur út. Ég er lika viss um að við eigum eftir að brjóta mörg steinsteypt hús niður á næstu árum bara vegana byggingmagns sem gæti nýst á byggingareit.
Edda Agnarsdóttir, 11.1.2008 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.