21.6.2007 | 14:55
hátíđir og stúdínan okkar
Verđ ađ sýna heiminum ţessa fínu mynd af stelpunni minni henni Jóhönnu Thorarensen međ hvítan koll, hún er til vinstri á myndinni. Ţađ var mikiđ um dýrđir í tilefni af útskriftinni - flott hvernig útskrift og útskriftarafmćli setja alveg sérstakan blć á hátíđahöldin á Akureyri á 17. júní.
Ţađ verđur nefnilega ađ viđurkennast ađ víđa um land einkennast hátíđahöld sautjánda júní svolítiđ af sömu gömlu rullunni og hefur ekki einu sinni tekist ađ varđveita hátíđablćinn. Ţarna kemur saman persónuleg hátíđ hjá 135 manns og ţeirra fólki og ađ bćrinn skartar sínu besta í tilefni bćđi ţjóđhátíđar og útskriftar.
Hér í Skagafirđi var brotiđ uppá ţví nýmćli ađ hafa ein hátíđahöld, á Sauđárkrók sem er stćrsta hverfiđ í sveitarfélaginu - en tilefniđ var ţó ađallega 100 ára afmćli UMF Tindastóls. Ég var međ fjölskyldunni á Akureyri en frétti ađ ţetta hefđi veriđ mjög glćsilegur 17. júní á Króknum og ég vona bara ađ viđ getum haldiđ áfram ađ hafa eina góđa ţjóđhátíđ allra skagfirđinga - ađ ekki sé minnst á Sćluviku, víkingahátíđ, Jónsmessuhátíđ á Hofsósi (um nćstu helgi), Hólahátíđ, stóđréttir, kóramót, ţrettándaball, ţorrablót og svo aftur Sćluviku!
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:56 | Facebook
Eldri fćrslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Til hamingju međ dótturina. Hún er glćsileg.
Edda Agnarsdóttir, 21.6.2007 kl. 20:28
Takk - og svo er hún líka klár og skemmtileg!
Guđrún Helgadóttir, 22.6.2007 kl. 13:35
Til Hamingju međ Dótturina.
Ţórđur Ingi Bjarnason, 22.6.2007 kl. 19:19
Innilega til hamingju međ dóttur ţína Guđrún mín.
Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 24.6.2007 kl. 10:59
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.