Leita í fréttum mbl.is

einmitt

eitt af því sem hefur vantað í matvælaframboðið hér á landi. Það er einhvernveginn meira í takt við þjóðlífið hjá ekki stærri þjóð að horfa á fleira en stórframleiðslu. Flest þessi fyrirtæki eru lítil og framleiða sérvöru fyrir ákveðinn markhóp - og svo mæli ég með að allt áhugafólk um ís prófi kókos ísinn frá Holtsseli...
mbl.is Vaxandi áhugi á heimavinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

bilun

hvar halda menn að þeir séu - í Hong Kong eða einhverju álíka landlitlu borgríki? Þar eru þó alla vega almenningssamgöngur til að taka á því hvernig allt það fólk á að komast á staðinn sem væntanlega á að búa þarna eða starfa. Hvað ætli svona draumórar kosti þjóðarbúið í þenslu og álagi á samgöngukerfið - svo er verið að væla yfir að ein og ein jarðgöng séu dýr!
mbl.is Smáratorg rifið og háhýsi byggt í staðinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þarf ekki mótvægisaðgerðir

til að jafna hlut kynjanna í mótvægisaðgerðum? Ég er hrædd um að litli sæti sjóðurinn til eflingar atvinnumála kvenna dugi nú skammt í því efni, litlar 16 milljónir borið saman við mótvægisaðgerðasjóðinn sem er einhverjir 10 milljarðar ef ég man rétt. Sjóðurinn til atvinnumála kvenna er fínn sjóður og hefur komið að góðu gagni - en hámarksúthlutun úr honum að þessu sinni var 1,5 milljónir og það var eitt verkefni, flestir styrkirnir voru um 500.000...
mbl.is Mótvægisaðgerðir gagnast frekar körlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þorrablót Hóla- og Viðvíkurhreppa

var í Höfðaborg á laugardaginn og ég skemmti mér vel - enda fékk ég að troða upp, herma eftir nágrönnunum og fara með allskonar bull og vitleysu um hagi þeirra, háskólann og hundanna í sveitinni. Þorrablótsnefnd er nefnilega ekki bara ekkert mannlegt óviðkomandi, henni ber skylda til að fylgjast með högum húsdýranna líka. Enda getur það vel farið saman, hamingja manna og dýra.

Hér kemur hver fjölskylda og hennar gestir með sinn þorramat í trogi - stundum slæðist eitthvað óþjóðlegra með í trogið ef útlit er fyrir að gestirnir svelti öðrum kosti. Sést hafa kótelettur, kjúklingalæri og jafnvel flatbökur innan um súra punga, magála og svið!

Eftir borðhaldið og heimalagaða skemmtidagskrá eru tekin upp borðin af dansgólfinu og sett í hliðarsalina og svo er dansað fram á morgun. Höfðaborg er almennilegt félagsheimili með alvöru dansgólfi og það er vel nýtt á svona kvöldi. Eins gott að kvenfólkið er búið að vera að æfa boot camp og karlarnir vanir að glíma við naut og hver annan í bandý þannig að almennt úthald var með betra móti.


nú er úti veður vott

verður allt að klessu.

Ekki á hann Grímur gott

að gifta sig í þessu.

Ég man ekkert hvar eða hvenær ég lærði þessa vísu, mig minnir að mamma hafi kennt mér hana þegar ég var lítil - einmitt í svona veðri roki og hláku og ekkert vit að fara út að leika sér. En ég ætla nú samt út að leika mér á eftir - ég þarf að komast útí Hofsós til að æfa fyrir þorrablótið annað kvöld!


athyglisverð leið

til að taka á málum þar sem það á við. Ætli þetta sé ekki að sumu leyti farsælla, að það finnist frekar lausn og að bæði þolanda og geranda finnist að þeir geti lokið málinu?
mbl.is Sáttamiðlun gefur góða raun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskólinn á Hólum

er þessa stundina nær óstarfhæfur vegna hátíðahalda - allir nemendur leikskólans Brúsabæjar eru mættir grímuklæddir og syngja frumsaminn brag gegn hæfilegu endurgjaldi og svo er von á nemendum Grunnskólans að Hólum í sömu erindagerðum. Nemendur mínir á fyrsta ári í Ferðamáladeild halda daginn líka hátíðlegan en ég verð að viðurkenna að var alveg búin að gleyma hvaða dagur er! Sem er auðvitað frekar hallærislegt því ég er að kenna námskeiðið Hátíðir og viðburðir í dag...
mbl.is Furðuverur á faraldsfæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

flott verknám

Fjölbrautaskólinn á Sauðárkrók er að gera góða hluti í verknámi, bæði í tré og málmgreinum, gaman að fylgjast með hvað þessir krakkar eru að fást við metnaðarfull verkefni http://www.skagafjordur.com/index.php?pid=511&cid=9327


er sennilegt

að allt hafi verið með felldu og ekkert saknæmt skeð ef stúlkan var í "nokkru uppnámi" og jafnvel grátandi?


mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

heima er gott

kannski best - allavega á degi eins og þessum; djúpur, jafnfallinn snjór og logndrífa. Hólar á kafi svo trén svigna undan snjónum, krakkarnir öll með eplakinnar á fullu að renna sér svo hlátrasköllinn úr Lautinni heyrast um allan staðinn. Við Guðrún Þóra drifum okkur á gönguskíði, þóttumst þurfa að hreyfa okkur eftir frábæran miðdegisdögurð  hjá Hrönn (málvöndunarsinninn Björg Baldurs neitar að tala um brunch) en svo þótti okkur ástæða til að bæta upp hugsanlegan kaloríumissi með heitu súkkulaði og rjóma Joyful


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband