Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

lögum stöðuna í norðvestrinu

með því að koma þrem á þing frá Samfylkingunni þeim Gutta, Ólínu og Örnu Láru! Í Norðvesturkjördæmi er Samfylkingin eini flokkurinn með tvær konur í þrem efstu sætum og það er raunhæfur möguleiki að koma þeim báðum á þing - koma svo stelpur!
mbl.is Færri konur á framboðslistum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

við í sirkus

Geira smart, trúum því að hvítt sé svart! Sjálfstæðismenn haga sér eins og sannir trúðar, syngjandi og trallandi í sínu málþófi meðan þjóðin bíður eftir leiðum til lýðræðis og lausnum á brýnum vanda. Svo leyfa þeir sér að væla um að lítið gangi að leysa málin - meðan þeir sjálfir þvælast fyrir sem mest þeir mega!
mbl.is Slegið á sáttahendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

vissi maðurinn þetta ekki?

Og er þó þingmaður og fyrrum ráðherra? Eða var þessi yfirlýsing um að óska eftir rannsókn bara orðin tóm? Vill hann ekki bara biðja um lögreglurannsókn?
mbl.is Ríkisendurskoðun hefur ekki heimild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

vaá, djúpt...

það kemur betur og betur í ljós að Sjálfstæðismenn vita minna en ekkert um efnahagsmál, algerlega ráðþrota lið!
mbl.is Krónan veikst með nýrri stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

voru þeir ekki á móti málþófi?

kannski bara hja hinum? Aldrei aftur xD vid völd! Algjört skilningsleysi à vilja almennings!
mbl.is Þingfundur til hálf þrjú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

grjót úr glerhúsi

ég var að lesa alveg ótrúlega pillu á www.skagafjordur.com frá Einari Kr. Guðfinnssyni um það sem hann kallar ofríkisstjórnina sem nú sitji. Og hvert er nú ofríkið sem hann kvartar sáran yfir? Nú að láta að vilja meirihluta þjóðarinnar og ráðast í breytingar á stjórnarskránni! Er maðurinn alveg búinn að gleyma bláu höndinni? Það er að kasta steinum úr glerhúsi þegar Sjálfstæðismenn kvarta undan ofríki. Síðast þegar rætt var um að breyta stjórnarskránni var það Davíð og klappliðið hans sem vildi afnema rétt forseta til að skjóta málum til þjóðaratkvæðis með því að neita að undirrita lög. Það er semsé alveg kýrskýrt að Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert fyrir beint lýðræði.

« Fyrri síða

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband