Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
31.12.2009 | 18:19
kötturinn sagði ekki ég,
svínið sagði ekki ég - afneitunarþjóðin man ekkert eftir að hafa skrifað uppá frjálshyggjuna aftur og aftur og aftur með því að kjósa Framsókn og Sjálfstæðisflokk. Það er bara því miður þannig að sú undirskrift gildir, þessir flokkar og þeir fjárglæframenn sem fóru fram í skjóli þeirra voru á okkar ábyrgð. Vonandi tekst að koma lögum yfir þá sem þau brutu og endurheimta eitthvað af ránsfengnum - en heldur nokkur maður að þeir, sem sátu við kjötkatlana á spillingartímanum muni hafa hag af því? Heldur einhver að það sé af umhyggju fyrir almenningi í landinu sem Framsóknarflokkurinn bregður Indefence fyrir sig?
Undirskriftir yfir 49.000 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.12.2009 | 18:12
batnandi mönnum er best að lifa
- en hitt er annað að eftir að hlusta á málflutning þingmanna í gær er ég ekki trúuð á að margir þeirra beri gæfu til að hefja sig yfir flokkaþras. Þar eru nýir þingmenn engu skárri en þeir sem reyndari eru. Málþófið sem hefur tafið uppbyggingu íslensks efnahagslífs er þeim, sem það stunduðu til skammar.
Stjórnmálamenn hvetja til samstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2009 | 15:06
hverju breytir það?
ICESAVE gufar ekkert upp - við berum ábyrgð á okkar hlut innistæðutryggingarinnar hvað sem hver segir og það þarf að klára málið. Allt gap stjórnarandstöðunnar um allskyns úrræði til að borga ekki eru bara áframhald á andskotans óreiðunni sem þessir frjálshyggjufuglar kölluðu yfir okkur. Haldið þið að það sé til að gæta hagsmuna okkar sem enneinn og ungi litli mála skrattann á vegginn? Nei það er bara til að skapa pólitískan glundroða til þess að komast aftur að kjötkötlunum. Svo sorglega einfalt er það.
Búnir að fá tölvupóstana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2009 | 15:14
en hvað með hinar skuldirnar?
ICESAVE er ekki stærsta skuldin sem við stöndum frammi fyrir, hvað með skuldir Seðlabankans - eigum við ekki bara að greiða atkvæði um þær líka? Þetta er ekki flókið þó Sjálfstæðismenn og Framsókn vilji allt til vinna að enginn skilji upp eða niður í málinu lengur: Við komumst ekki undan því að axla ábyrgð á ICESAVE - til þess eru innistæðutryggingar og ef menn standa ekki við þær tryggingar sem þeir hafa lagt fram eru þeir óreiðumenn. Erum við það sem þjóð?
Önnur tillaga um þjóðaratkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.12.2009 | 15:04
haldiði að þetta snúist um okkur?
Nei. Einmitt þessa stundina er hrunadansarinn Tryggvi Herbertsson í ræðustól - búinn að snúast hring eftir hring eins og veðurhani eftir því hvort Sjálfstæðisflokkurinn er í stjórn eða utan. Fyrrum ráðgjafi Geirs H. Haarde, einn af postulum frjálshyggjunnar hérlendis - maður sem fyrir hrun starfaði við flókna fjármálagjörninga... Heldur einhver í alvöru að hann ætli að verja hagsmuni íslensks almennings? Heldur einhver í alvöru að þetta málþóf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar snúist um eitthvað annað en að komast aftur til valda?
Lokaumræða um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2009 | 23:32
hvað er að ykkur stjórnarandstaða?
Haldiði virkilega að þjóðinni sé skemmt yfir þessu bulli? Hvað á þetta skrípó að þýða að trítla einn eftir annan í ræðustól til að spyrja hvenær ykkar eigin málþófi ljúki? Ég get alveg skilið að þið séuð búin að fá nóg af ykkur - hver er það ekki?
Þingfundur þar til mælendaskrá er tæmd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.12.2009 | 23:23
þangað leitar klárinn
sem hann er kvaldastur segir máltækið. Eru íslendingar virkilega svona andlega kúgaðir að í kreppunni hrökkvi þeir í þá skelfilegu varnarstöðu að kjósa íhaldið aftur - flokkinn sem réði ferðinni fram af hengifluginu? Flokkinn sem stendur núna í málþófi um leiðir til að sleppa við skuldbindingarnar sem hann bar hvað mesta ábyrgð á? Málþóf án alls tillits til hagsmuna atvinnulífs og samfélags? Hvar er sóknarhugurinn?! Hvar er heiðarleikinn og hið nýja Ísland?
Litlar breytingar á fylgi flokka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007