Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
31.1.2007 | 18:05
hvað er í gangi í pólitíkinni?
Finnst fólki sem er búið að líða fyrir stefnu núverandi ríkisstjórnar það virkilega vænlegast til árangurs að tvístra liði sínu í nokkur sérframboð byggð á afmörkuðum baráttumálum?
Munu aldraðir og öryrkjar ná meiri styrk með því að verða smáflokkur heldur en með því að styðja þá flokka sem hafa jafnrétti og mannréttindi á sinni stefnuskrá - hafa Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Ásta Ragnheiður, svo ég nefni nú bara þingmenn samfylkingar af handahófi ekki verið að berjast fyrir hagsmunum þessa hóps? Er ekki nær að krefjast réttar síns í flokkunum, ég sé ekki betur á myndum af fundum stjórnmálaflokka að þar séu aldraðir og öryrkjar.
Finnst Ómari og Andra Snæ virkilega líklegt að þeir muni fá þann stuðning og hugarfarsbreytingu sem þarf í öllum stjórnmálaflokkum með því að stilla sér upp sem enn einum flokknum? Því eins og kom fram í máli Ómars í útvarpinu áðan þá getur flokkur eða framboð ekki verið bara á grundvelli eins málaflokks. Þannig að þeirra Framtíðarland yrði þá eitthvað annað land en Fagra Ísland eða hreinlínulandið Vinstri grænna, hvað þá heldur land hægrigrænna.
Það heyrist jafnvel talað um kvennaframboð, en er ekki kona að sækjast eftir embætti forsætisráðherra? Er betra að kjósa sérframboð kvenna með takmarkaða möguleika á pólitískum völdum heldur en að kjósa hana? Vorum við ekki búin að prófa það? Það skipti jafnréttisbaráttu íslendinga máli þegar kona var kosin forseti, það mun skipta máli að hafa konu sem forsætisráðherra. Ekki bara í stuðningsliðinu sem þingmann, ritara, varaformann eða framkvæmdastjóra þingflokks heldur í forystu.
Ég held að öll þessi sérhyggja í stjórnarandstöðu muni bara leiða eitt af sér; úrval af hækjum fyrir flokkinn sem enn er stærstur stjórnmálaflokka í landinu. Það myndi þýða óbreytta stjórnarstefnu og er það það sem aldraðir, öryrkjar, feministar og náttúruverndarsinnar vilja?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook
31.1.2007 | 17:10
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007