26.8.2009 | 14:30
eigum við ekki að vera með svörin hvort eð er?
Hvaða bull er þetta? Auðvitað eigum við að vera með allar þessar upplýsingar á hreinu, ESB á ekki að geta dottið í hug spurning um okkur sem við vitum ekki svarið við. Það er reginmunur á íslenskri stjórnsýslu og t.d. Svartfjallalands að því leyti að við söfnum lykilupplýsingum s.s. um mannfjölda, vísitölur, atvinnuleysi etc. etc. jafnóðum og birtum árlega ef ekki oftar. Allar ríkisstofnanir eiga að skila ársskýrslum svo það er gífurlegt magn upplýsinga um íslenskt þjóðfélag fyrirliggjandi og því erum við vel í stakk búin að safna þeim saman. Margar Evrópuþjóðir styðjast enn við manntal sem gert er á nokkurra ára fresti til að fylgjasta með þróun mannfjölda. Hér er þetta uppfært árlega, bara svo dæmi sé tekið. Þó Jón Bjarnason evrópuandstæðingur tuði um að það verði svo mikil vinna í landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneytunum að taka saman upplýsingar tek ég því með fyrirvara. Eða hafa samningar um niðurgreiðslu landbúnaðarvöru eða úthlutun aflaheimilda ekki verið teknar á grundvelli upplýsinga hingað til?
Búa sig undir spurningaflóðið frá ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þetta er væntanlega alveg hárrétt hjá þér Guðrún, enda til lítils að liggja yfir endalausri söfnun upplýsinga, séu þær ekki nýtanlegar þegar til á að taka.
Bendi svo ykkur hjónum á blogg mitt um Hólableikjur. Trúi að herra Helgi lumi á viðbótarupplýsingum þar, sem gaman væri að sjá.
Kær. kv.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 28.8.2009 kl. 13:10
Ég ætla bara rétt að vona að Evrópusambandið hafni aðild Íslands. Við höfum ekkert að gera inn í þetta samband. Versta er að samfylkingafólk sér ekkert annað en ESB og á meðan gerist ekkert í þeim málum sem koma íslandi út úr þessum vanda. Ísland þarf að búa sig vel undir spurningarflóð ESB og vonandi komast önnur ESB lönd að því að Ísland á ekkert heima þarna. Það er ekki hægt að búast við því að ríkisstjórnin sjái þetta þar sem þeir horfa aðeins í eina átt. Vonandi hafa önnur lönd vit fyrir okkru og hafna okkur.
Þórður Ingi Bjarnason, 1.9.2009 kl. 17:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.