18.11.2008 | 15:37
múlbundnir, latir
eða illa hæfir eins og Þorbjörn Broddason ýjaði að í viðtali við sjónvarpið (RUV) í fréttum í gær? Allavega er úrvinnsla fjölmiðla á varnarræðu stjórnmálamannsins Davíðs Oddssonar ekki uppá marga fiska. Flestir láta sér nægja að birta orðrétt kafla úr ræðunni - en virðast ekki farnir að lesa ræðurnar og fundargögnin sem hann vitnar í til þess að skoða í hvaða samhengi þessir bútar sem hann tínir saman, stóðu upphaflega. Það virðist bara hafa náðst í Össur til að spyrja út í meint heyrnarleysi annarra ráðamanna en Davíðs sjálfs.
Hvar eru nú rannsóknarblaðamennirnir sem væru farnir að leita að ræðunni þar sem Davíð tilkynnti þá stefnu að Ísland yrði miðstöð fjármála og viðskipta á heimsmælikvarða, sem væru farnir að rýna í umræður á Alþingi um þau frumvörp sem urðu að núgildandi lögum t.d. um Fjármálaeftirlitið og ákvörðunina um að leggja Þjóðhagsstofnun niður?
Fjölmiðlafólk með tilfinningu fyrir sögunni og stóra samhenginu er allt of fátt; enda geltir varðhundur almennings jafnt að bréfberanum sem ræningjanum, béff béff og dillar svo skottinu tiltölulega ánægður með síðustu klippingu og þvott...
Fjölmiðlar í heljargreipum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.