21.4.2008 | 14:12
hnegg hrossagauksins
er einn af vorboðunum og þegar ég var lítil kenndu foreldrar mínir mér þá þjóðtrú að það hefði spádómsgildi úr hvaða átt maður heyrði hneggið fyrst á vorin. Nú man ég þetta svolítið óljóst en er nokkuð viss um að vilja heldur heyra hann í austri; auðnugaukinn eða suðri; sælugaukinn heldur en norðri nágauk eða vestri vælugauk.
Nú veit ég ekki hverju skal trúa á þessu vori. Í nótt kvakaði hrossagaukur þessi ósköp sunnan undir svefnherbergisglugganum okkar - en hneggjaði ekki. Og í morgun kíkti ég á vef Háskólans á Hólum og er þar ekki komin frásögn og hljóðupptaka af hneggi gauksins. Þannig að fyrsta hrossagaukshneggið sem ég heyrði á þessu vori var úr tölvunni - sem er reyndar sunnan við mig þar sem ég sit norðan við lyklaborðið... Ætli mér sé óhætt að taka þetta tvennt til marks um að fyrir þessu sumri spái sælugaukur?
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Já eigum við ekki að segja það, uns annað kemur í ljós.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.4.2008 kl. 14:20
Sælugaukur! Ekki spurning!
Stefán Gíslason, 25.4.2008 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.