18.10.2007 | 10:59
Jorvik
Ég var á Englandi í síðustu viku og ákvað sem prófessor í menningartengdri ferðaþjónustu að bregða mér til York og skoða Jorvik víkingasýninguna sem er byggð á fornleifauppgreftri sem hófst þegar verið var að reisa verslunarmiðstöð í miðbænum. Þetta er nú frekar lítil sýning en að ýmsu leyti ágæt. Það er smá húmor í þessu á köflum, en kannski svolítið byggður á staðalmyndum: Það er búið að gera brúður byggðar á tilgátum um útlit þeirra einstaklinga sem hafa verið grafnir upp. Þessar brúður eru svo í eftirgerðinni af víkingabænum, uppteknar við ýmis störf - nema tveir smiðir sem sitja og gæða sér á nestinu sínu að því er virðist. Handan við stíginn stendur kona og lætur móðan mása og virðist vera að segja smiðunum alveg krassandi kjaftasögu eftir málrómnum að dæma. Annar smiðurinn hlustar af áhuga og segir annað slagið: Nú? Jaá, nújá?
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.