14.8.2007 | 17:02
allir á móti öllum í umferðinni?
Ég var að lesa bloggfærslur sem lýsa vel leiðinlegum móral hérlendis varðandi umferð og umgengni við landið. Það er tilhneiging okkar til að fjandskapast og óskapast í garð þeirra, sem hafa annan ferðamáta en við sjálf höfum valið okkur. Í viðkomandi tilfelli voru crossarar og hestamenn að rífast, enda mörg dæmi um árekstra þessara ólíku ferðamáta. Í báðum tilfellum eru iðkendur víða um land að byggja upp aðstöðu, þ.e. reiðstíga annars vegar og mótorcross brautir hinsvegar. Í báðum tilfellum liggja þessir hópar (og reyndar fleiri s.s. jeppafólk) undir ámæli annarra ferðalanga t.d. göngufólks, um að umferð þeirra utan vega spilli landinu. Það er mjög mikilvægt að ræða um hvað má betur fara í umferð og umgengni um landið á hvaða fararskjóta sem fólk velur sér. En að stilla málinu alltaf upp þannig að einn ferðamáti sé betri eða verri en annar er alveg gagnslaust. Það eru svartir sauðir á öllum farartækjum og fararskjótum. Umræðan birtir oft sorglega fordóma fólks í garð þeirra sem ferðast um á einhverju öðru en það sjálft þekkir og metur best.
Umferðarmenning á Íslandi er því miður að mörgu leyti ómenning; fólk ekur of hratt miðað við aðstæður bæði á þjóðvegunum og í íbúðahverfum, fleygir rusli á götur og akvegi (sjáið allar gosflöskurnar í vegkantinum), reiðvegi og göngustíga (sbr. umræðu í sumar um uppsafnaðan klósettpappír við gönguleiðir á hálendinu), fólk ekur/ríður/gengur án tillits til þess hvort það valdi spjöllum (sjáið alla óformlegu gönguslóðana á ræktuðu landi í þéttbýlinu - jafnvel rétt við gangstíg!) Það sem er kannski verst er fólk fer illa með eigin sálarástand og stofnar lífi og limum í hættu með því að æsa sig upp í illindum við aðra vegfarendur. Það að aka vegina í bílnum sínum bölvandi hinum bílstjórunum, hjólreiðafólkinu eða hestamanninum sem skv. umferðarlögum er líka í sínum fulla rétti á veginum - er ekki bara sorglegt heldur hættulegt.
Það þarf að haga sér í samræmi við aðstæður og virða aðra vegfarendur hvernig sem þeir kjósa að ferðast. Það gildir það sama um ökumenn fólksbíla, hestamenn, jeppafólk, sleðafólk og mótorcrossara: Enginn þessara hópa á það skilið að fá á sig einhvern allsherjar stimpil útaf slæmri framkomu einhverra með sama áhugamál. Á myndinni sjáið þið dæmigerðan ferðahóp á íslenskum hestum, þau ferðast með svipuðum hætti og hefur verið gert hér frá landnámi. Þau velja að vera á fáförnum vegi því enginn hefur beinlínis áhuga á að ríða í bílaumferð, það er riðið fyrir og á eftir og þess gætt að hrossin lesti sig (séu í einfaldri röð) þannig að hægt sé að mæta og/eða hleypa annarri umferð framhjá. Er einhver ástæða til að æsa sig yfir þessu?
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.