Leita í fréttum mbl.is

grjót úr glerhúsi

ég var að lesa alveg ótrúlega pillu á www.skagafjordur.com frá Einari Kr. Guðfinnssyni um það sem hann kallar ofríkisstjórnina sem nú sitji. Og hvert er nú ofríkið sem hann kvartar sáran yfir? Nú að láta að vilja meirihluta þjóðarinnar og ráðast í breytingar á stjórnarskránni! Er maðurinn alveg búinn að gleyma bláu höndinni? Það er að kasta steinum úr glerhúsi þegar Sjálfstæðismenn kvarta undan ofríki. Síðast þegar rætt var um að breyta stjórnarskránni var það Davíð og klappliðið hans sem vildi afnema rétt forseta til að skjóta málum til þjóðaratkvæðis með því að neita að undirrita lög. Það er semsé alveg kýrskýrt að Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert fyrir beint lýðræði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hugsaði það sama, þegar ég las fyrirsögnina hjá honum.   Hvað eiginlega kemur þessu liði til að tala um ofríki annara.  Þeir sjálfir ofríkismennirnir sem hafa rústað landinu og kunna ekki að skammast sín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2009 kl. 11:55

2 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

Ein,itt!

Guðrún Helgadóttir, 7.4.2009 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband