Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

sigur í dag, vinna á morgun

því verkefnin hlaupa ekkert frá okkur. Jóhönnu er stefnuföst og traust kona sem mun leiða Samfylkinguna og þjóðina í gegnum þessa kreppu. Það er fyrst og fremst mikil vinna að fjölbreyttum og raunhæfum lausnum. Nú er ekki tíminn fyrir kosningabrellur, framtíð okkar veltur á því að það verði unnið mikið, vel og heiðarlega. X-S
mbl.is Sumar og sigur í lofti segir Jóhanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

taktu þátt í uppbyggingunni

með því að kjósa besta verkstjórann sem völ er á og hennar vaska flokk. Samfylkinginn er eini flokkurinn með skýra stefnu um lausn á gjaldeyrisvandanum og verðtryggingarfjötrunum. Veljum raunhæfar lausnir, það eru engar einfaldar heildarlausnir til á þeim vanda sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir. Lausnirnar liggja í mörgum litlum skrefum en raunhæfum skrefum í rétta átt, það er vinna og erfiði fram undan, þá þarf almennilega verkstjórn en ekki loddaraskap!
mbl.is Sögulegar kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ótrúverðugur málflutningur

að Sigmundi Davíð hafi alltíeinu borist minnisblað tveim dögum fyrir kosningar sem sýni að himininn sé að hrynja. Hrunið var í boði Framsóknarflokksins sem rúllaði út rauða dreglinum fyrir efnahagsböðlana sem seldu okkur hugmyndir um stórar lausnir, stórframkvæmdir sem juku á þenslu og 90% lánin sem líka stuðluðu að því að hagkerfið bræddi úr sér. Og nú er enn verið að draga kanínur uppúr hattinum, patentlausnir eins og 20% niðurfellinguna.
mbl.is Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að vera í samfélagi þjóða

er ekki bara spurning um efnahagslegan ávinning. Íslendingar eru aðilar að Sameinuðu þjóðunum og hafa „látið yfir sig ganga“ svo notað sé hræðsluorðfærið, alþjóðaskuldbindingar um mannréttindi, umhverfis og menningarmál sem etv. mætti segja að væri framsal á fullveldi. Sama má segja um aðild okkar að Norðurlandaráði, NATO, nú eru fulltrúar ÖSE mættir til að fylgjast með framkvæmd kosninga og svo mætti lengi telja. Íslenskur almenningur þarf að spyrja sig hvaða hagsmunum það þjónar að mála aðild að Evrópusambandinu sem skrattann á vegginn. Við eigum ekki að vera hrædd, Evrópusambandið er örugglega til viðræðu um að lána okkur tjakk!
mbl.is Vaxtaávinningur af ESB-aðild: 228 milljarða lækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gott mál

og í fullu samræmi við málflutning Jóhönnu árum saman. Það skiptir miklu að öll hagsmunatengsl séu rekjanleg þannig að fólk geti fylgst með því hvort stjórnmálamenn eru að ganga erinda þeirra sem styrktu þá.
mbl.is Vill endurskoðun á lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gleðilegt sumar

og takk fyrir veturinn! Ekki veit ég hvort fraus saman sumar og vetur - en fyrsta hnegg hrossagauksins hér heima var hátt í austrinu svo það var auðnugaukur. Ég treysti honum!

brellupólitíkin er svooo 2007

það er ótrúlegt að horfa uppá menn haga sér eins og ekkert hafi í skorist, eins og sé hægt að vaða fram með sömu ódýru lausnirnar: Hver er eiginlega munurinn á 90% lánagildrunni og 20% niðurfellingunni? Hvort tveggja skyndilausnir og skrum. Skipta um fólk á frontinum en halda áfram með sömu hugmyndirnar - hvaða endurnýjun er það eiginlega? Framsóknarflokkurinn er einfaldlega ekki trúverðugur þrátt fyrir krúttlega kindabæklinginn sinn, þar er úlfur í sauðargæru.

sömuleiðis

ég trúi því ekki að Vg séu svo heimóttarlegir að þeir þori ekki að taka af skarið og ganga til viðræðna. Ég veit að innan þeirra raða er náttúrlega óttalegt íhald á köflum, fólk sem er raunverulega hrætt við allar breytingar. En vonandi fær það fólk ekki umboð til að drepa íslenskt þjóðlíf í dróma haftastefnu og  forræðishyggju.
mbl.is Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

traust og hagkvæmt skipulag

fyrir hvern? Landvinnslufólkið sem veit aldrei hvert er búið að selja kvótann og hvort verður vinna? Eða útgerðarmennina sem eiga allt sitt í evrum og þýska fiskveiðikvótann eins og hann leggur sig? Hræðsluáróður af þessu tagi hentar hagsmunum þeirra best.
mbl.is Segja fyrningu aðför að 32 þúsund fjölskyldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

er óeðlilegt að segja eins og er?

Að óljósar hugmyndir sjálfstæðismanna um einhverjar evru dílingar um bakdyrnar séu ekki raunhæfar? Ég hefði haldið það skyldu þessa embættismanns að gefa hreinskilin svör um slíkt, sama þó það henti ekki einhverjum flokki hér heima. Það er enn allt við sama heygarðshornið, eini flokkurinn á Íslandi sem þorir í Evrópuviðræður og þorir að koma hreint til dyranna í því sambandi er Samfylkingin. Framsóknarmenn segja ýmist já eða nei, eftir því hver talar; formaður Sjálfstæðisflokksins lét kvótakóngana stinga uppí sig; og VG vill helst ekki horfast í augu við þetta verkefni.
mbl.is ESB blandar sér í kosningabaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband