Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

þú ert ekki Jón Sigurðsson,

Bjarni Benediktsson. Það er til háborinnar skammar að þú skulir leyfa þér að klína þínum smjörklípum á minningu Jóns forseta. Þú komst rækilega upp um hinn eiginlega tilgang málþófs  þíns um ICESAVE málið með því að lýsa því yfir að það væri eina málið sem ætti að vera á dagskrá - þú vilt ekki ræða um uppgjörið, þú vilt ekki ræða um ábyrgðina og þú vilt ekki ræða hvað er að gerast í fyrirtækjunum - allra síst fjármálageiranum. Þú og þínir stuðningsmenn Óskar Nafnleyndar og NN viljið umfram allt ekki að fjölmiðlar og fólkið geri það sem er grundvallarregla í rannsókn spillingar og auðgunarbrota: Follow the money!

Ábyrgð, orsök og afleiðing

Það var ekki uppbyggilegt að hlusta á alþingismenn gera grein fyrir atkvæðum sínum um ICESAVE. Landsölumennirnir sem áratugum saman rúlluðu út rauða dreglinum fyrir fjölþjóðlega auðhringa og gáfu þeim - og sjálfum sér, íslenskar auðlindir storka nú skynsemi almennings með því að kalla afleiðingu gerða sinna orsök vandans!

Nú gala þeir hæst um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar sem aldrei gáfu því gaum meðan þeir voru við völd. Endar er það svo þegar að er gáð að í munni Sjálfstæðismanna, Framsóknar og því miður sumra Vinstri grænna er enginn greinarmunur gerður á efnahag þjóðarinnar og hagsmunum svokallaðra eigenda fjármagns og kvóta til lands og sjávar.

Nú gráta þeir sem áratugum saman sátu að kjötkötlunum krókódílatárum yfir þeim byrðum sem eigi að velta á ókomnar kynslóðir, kynslóðirnar sem þeir hafa alltaf verið tilbúnir að aðræna með ágangi á náttúru Íslands. Kynslóðirnar sem þeir tóku þjóðareignir af og færðu sér og sínum á silfurfati í nafni einkavæðingar.

Nú leggjast þeir svo lágt að höfða til lægstu hvata - þeir reyna að fá almenning niður á sama plan og þeir eru sjálfir á: Plan afneitunar, plan svikara og fjárglæframanna sem standa ekki við þær tryggingar sem þeir hafa sett, plan þeirra sem þykir sjálfsagt að græða á öðrum og óþarft að axla ábyrgð.

Látum ekki ljúga að okkur lengur, spyrjum að leikslokum og dæmum þá af verkum sínum.
mbl.is Meirihluti fyrir þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband