Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

nú er úti veður vott

verður allt að klessu.

Ekki á hann Grímur gott

að gifta sig í þessu.

Ég man ekkert hvar eða hvenær ég lærði þessa vísu, mig minnir að mamma hafi kennt mér hana þegar ég var lítil - einmitt í svona veðri roki og hláku og ekkert vit að fara út að leika sér. En ég ætla nú samt út að leika mér á eftir - ég þarf að komast útí Hofsós til að æfa fyrir þorrablótið annað kvöld!


hrepparígur

er slæm pólitík. Þessvegna bárum við gæfu til að sameina marga litla hreppa fyrir áratug, sem hefur verið til góðs fyrir íbúana en leitt af sér töluverðan kostnað við að bjóða þeim öllum sambærilega þjónustu. Sveitarfélagið Skagafjörður rekur t.d. grunnskóla í 5 byggðakjörnum, enda er vegalengdin endanna á milli í sveitarfélaginu 158 kílómetrar (eða einsog Reykjavík-Þórsmörk, Reykjavík-Brú í Hrútafirði eða þá Bolungarvík-Bíldudalur). Þetta á að skipta máli við ákvörðun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, ef jafnrétti milli landshluta og íbúa landsbyggðarinnar er haft að leiðarljósi.

handverk og hefðir

ég er á leiðinni á ráðstefnu Heimilisiðnaðarfélagsins Handverkshefð í hönnun , vonandi verður tími til að skoða eitthvað af sýningunum sem eru í tengslum við þetta. Ég ætla að kynna Fornverkaskólann aðeins í leiðinni en sú hugmynd er alveg að gera sig, fullt af fólki vill læra vinnubrögðin sem þarf til að halda við gömlu handverki í byggingalist. Kem við í Glaumbæ til að halda fund í menningar- og kynningarnefnd um safnasvæðið, við þurfum að vinna í því að gera það betur úr garði til að taka við auknum gestakomum. Það dregur ekki úr áhuganum að fornleifarannsóknir hafa leitt í ljós skála frá landnámsöld. Semsagt, athyglin er á menningararfinn þessa stundina. Svo er Laufskálarétt um helgina, reyndar er hún eiginlega eitt besta dæmið um hvernig hefðir og verkmenning (að smala hrossunum úr afrétt og rétta) verður að viðburði - hátíð í samtímanum.


farin af fjölunum

síðasta aukasýning á Ef væri ég gullfiskur hjá Leikfélagi Hofsóss var á laugardaginn í miðjum landsfundi Samfylkingarinnar (ok það var líka sextugafmæli og fermingarveisla fyrir sunnan) þannig að ykkar einlæg eyddi miklum tíma á þjóðvegi 1.

Þetta var fín sýning, góður salur og mikil orka. Það var frábært að hópur úr leikfélaginu í Stafholtstungum í Borgarfirði mætti, en þau höfðu einmitt sett þetta sama leikrit upp fyrir nokkrum árum. Við fundum strax að það var fólk í salnum sem þekkti verkið. Þau stoppuðu aðeins og spjölluðu eftir sýningu og skoðuðu aðstæðurnar hjá okkur, leikmynd og allt það. Höfðaborg er náttúrlega meiriháttar hús; fínt svið, góður hljómburður og tekur fleiri hundruð manns.

Það er reyndar svolítið fyndið að ég er farin að nota frasa úr leikritinu í tíma og ótíma án þess að taka eftir því - og þetta er nú ekki mjög djúpt verk með fullri virðingu fyrir Árna Ibsen sem höfundi þá er þetta farsi sem gengur mjög mikið útá aðra hluti en textann. Þannig að þetta gerir mig nú ekki gáfulegri...

Við Helgi tókum tvo af gullfiskunum í fóstur eftir sýningu, þau heita náttúrlega Stína og Berti...


Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband