Leita í fréttum mbl.is

heima er gott

kannski best - allavega á degi eins og þessum; djúpur, jafnfallinn snjór og logndrífa. Hólar á kafi svo trén svigna undan snjónum, krakkarnir öll með eplakinnar á fullu að renna sér svo hlátrasköllinn úr Lautinni heyrast um allan staðinn. Við Guðrún Þóra drifum okkur á gönguskíði, þóttumst þurfa að hreyfa okkur eftir frábæran miðdegisdögurð  hjá Hrönn (málvöndunarsinninn Björg Baldurs neitar að tala um brunch) en svo þótti okkur ástæða til að bæta upp hugsanlegan kaloríumissi með heitu súkkulaði og rjóma Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Já Skagafjörðurer örugglega fallegur á góðum vetrardegi - hef meira notið hans á sumrin.  Þitt fólk var stórskemmtilegt í Útsvarinu í gær - en auðvitað er ég ánægð með að mitt lið vann.  En þátturinn var einstaklega léttur og skemmtilegur - þar átti þitt fólk stóran þátt...

Hafðu það sem huggulegast...

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 2.2.2008 kl. 20:51

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gönguskíði! Það er akkúrat það sem ég hef oft hugsað um.

Edda Agnarsdóttir, 3.2.2008 kl. 13:02

3 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Það er frábært veður hér á Hólum núna til að stunda vetraútivist. 

Þórður Ingi Bjarnason, 3.2.2008 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband