Leita í fréttum mbl.is

í útlöndum

Elísabet vinkona er á Írlandi ein að skrifa og skrifar um lonelyness á blogginu sínu. Samt er allt fullt af fólki, ókunnugu fólki. Ég sendi henni ljóð, sem ég man ekkert hvenær ég samdi en það er um að vera ein í útlöndum

Ein

Það er svo gott

að ganga  ein

um óþekkt stræti

 

að hlusta ein

á útlent regn

 

að vera ein

í ókunnum stað

 

þó gæti verið gott

 

á götunni fram eftir veg

að heyra fleiri fóta tak

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gott ljóð Guðrún. Ég tek það af blogginu í kistuna mína. Hefur þú kannski gefið út bók?

Edda Agnarsdóttir, 23.9.2007 kl. 14:20

2 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

Sæl Edda, nei ég er bara skúffuskáld

Guðrún Helgadóttir, 23.9.2007 kl. 16:50

3 Smámynd: Regína Ásvaldsdóttir

Sæl Guðrún. Sá bloggið þitt af tilviljun áðan og ákvað undireins að taka vísuna til mín líka.

Vel kveðið.

Bið að heilsa heim á Hóla.

Regína Ásvaldsdóttir, 25.9.2007 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband