Leita í fréttum mbl.is

góður 1. maí

 Í ár var 1. maí  óvenju yndislegur - ég var auðvitað enn í skýjunum yfir flutningi Óperu Skagafjarðar á La Traviata kvöldið áður en svo hélt menningarveislan áfram. Við fengum þá flugu í höfuðið í Samfylkingunni í Skagafirði að taka þátt í Sæluviku með smá menningardagskrá fyrir börn um börn. Svo kosningaskrifstofan var lögð undir ljóðalestur, teikningu, holla hádegishressingu, milli þess sem var farið út að leika. Jakob Frímann Þorsteinsson var auðvitað úti að leika og Svanhildur Guðmundsdóttir las ljóð - með aðstoð Guðmundar sonar síns við valið. Anna Kristín Gunnarsdóttir sendi mér línu áðan og nefndi sérstaklega hvað það hefði verið notalegur ánægjukliður í hádeginu í íþróttanamminu, áherslupennarnir frá flokknum á lofti til að teikna og bara lifað og leikið sér.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband