Leita í fréttum mbl.is

brennuvargar?

Davíð Oddsson kallar gulldrengina nú brennuvarga og sjálfan sig slökkviliðsstjóra. En hver var það aftur sem gaf út brennuleyfið? Og rétti þeim eldspýturnar? Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar undir forystu Davíðs Oddssonar, gleymum því ekki. Á vakt þeirrar ríkisstjórnar var engin efnahagsstefna bara óskhyggja; ekkert eftirlit, bara sukk.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Er ekki skrýtið að það sem Bandaríkjamenn kölluðu Reaganomics og faðir Bush forseta, Bush eldri kallaði Voodoo economics (á meðan hann var í framboði á móti honum en hætti að tala um þegar hann var orðinn varaforsetaefni hans) varð sú stefna sem varð ofan á í efnahagsmálum sonar hans Bush yngri. Öfgafull nýfrjálshyggja - með ofurtrú á markaði og einstaklingsframtaki og bara aðgerðarleysi opinberra stofnanna -helst eyðingu þeirra.

Ég ætla ekki að dæma hvort að Davíð hafði þessa sýn eða var hvort hann var  fórnarlamb hugmyndastrauma sem blésu yfir flest Vesturlönd á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Það var okkur dýrkeypt eins og fleiri löndum...en það er vissulega kaldhæðnislegt hversu mikið var gapað uppí þessa hugmyndafræði hér heima. Það er satt. 

Anna Karlsdóttir, 8.10.2008 kl. 21:50

2 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Brennustjórinn er Davíð Oddson

Þórður Ingi Bjarnason, 9.10.2008 kl. 07:35

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég er sammála Þórði, Davíð er aðal brennuvargurinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.10.2008 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband