Leita í fréttum mbl.is

ekki láta snuða þig

af verslunareigendum sem eru komnir á undan sjálfum sér í verðhækkunum. Ég fór inní sjoppu um daginn og hefði eflaust ekki fattað neitt ef ég hefði ekki verið búin að týna verð vörunnar í klinki - en verðið sem starfsmaður gaf mér upp var 50 kalli hærra þegar varan var stimpluð inn. Ég benti á verðmerkinguna í hillunni, starfsmaðurinn talaði við vakstjóra en niðurstaða þeirra var að verðið "í tölvunni" gildi. Þetta er dæmi um ólöglega viðskiptahætti skv. lögum nr. 2005. Sjá nánar á vef Neytendastofu þar sem kemur fram að vörur skuli verðmerkja greinilega þannig að neytandinn sjái - neytandinn sér ekki "verðið í tölvunni". Við erum neytendurnir og við verðum að veita versluninni aðhald - ekki veitir af núna þegar verðhækkanir dynja á okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Það verð sem gildir er verð sem er í hillu.  Ég var að versla í verslun um daginn og það munaðu 1000 kr hvað kom fram á kassa og hvað stóð á hillu.  Ég benti á þetta og þá kom í ljós að tveir miðar voru á vörunni í hilli annar með lægra verði hinn 1000kr dýrari.  Þá hafi gleymst að taka alla miða eftir útsölu.  Ég sagði að ég borgaði ekki meira en það sem ég sá á hillu og þegar verslunarstjóri kom þá sagði hann að lægra verðið yrði að gilda. 

Þórður Ingi Bjarnason, 3.4.2008 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband