Leita í fréttum mbl.is

ekkert jólastress

þetta árið og þó er ég "ekki búin að öllu" eins og stendur skýrum stöfum á barmmerkinu sem hún María Gréta samstarfskona mín gaf mér í fyrra! Krakkarnir eru búin að baka piparkökur og við Helgi erum búin að setja hallærislegu jólaseríuna uppí tré útí garði - hún þykir svona í minna lagi miðað við tíðarandann en þegar ég sit inní stofu og horfi útí garð þá sé ég hvort eð er bara þann hluta af trénu sem serían er í... Svo er náttúrlega ekkert vit að vera með stóra útiseríu í þessum belgingi sem er búinn að vera allan desember.

Óli fór með mér í það mál fyrstu helgina í aðventu og svo þegar Jóhanna kom heim þá var farið á fullt í að hengja upp hið aðskiljanlegasta skraut sem á meira og minna fastan sess á heimilinu. Það er reyndar að sneiðast um pláss fyrir okkur heimilisfólkið því jólaskraut er eitt af því sem virðist alltaf að bætast við frá ári til árs. Svo var farið í laufabrauðsskurð með samstarfsfólki og grönnum niðri í skóla í vikunni, og í kvöld eru hinir ómissandi jólatónleikar kammerkórs Skagafjarðar í Hóladómkirkju. Jólastemmning fer því stigvaxandi, bloggáhugi að sama skapi minnkandi svo ég óska ykkur hér með gleðilegra jóla og góðra áramóta!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gleðileg jól og hafðu það gott bæði um jól og áramót! Rockettes 





Hrönn Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 18:45

2 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Gleðileg Jól og hafðu það gott um jólin.

Þórður Ingi Bjarnason, 21.12.2007 kl. 18:57

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.  Takk fyrir gamla árið Guðrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.12.2007 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband