Leita í fréttum mbl.is

fælingarmáttur lýðræðisins?!

Ég hélt mig væri að dreyma einhverja vitleysu í morgun þegar ég heyrði í gufunni að einhverjir aðilar væru nú uppfullir af áhyggjum af því að íbúalýðræði fæli erlenda fjárfesta frá Íslandi!!! Það er bara gott mál ef Hafnfirðingum hefur tekist með sinni atkvæðagreiðslu að þvo burt bananalýðveldisstimpilinn sem stóriðjustjórnvöldin hafa sett á Ísland með orkuútsölunni sem þau hafa staðið fyrir undanfarna áratugi.

Er þessu fólki alvara með því að leggja það inní umræðuna í einu elsta lýðræðisþjóðfélagi heims að við megum ekki fæla erlend stórfyrirtæki með atkvæðagreiðslum? Er þetta ekki bara bergmál frá 3. heiminum þar sem fólki er tekinn vari við að fæla erlend stórfyrirtæki frá með verkalýðsbaráttu, kröfum um mannsæmandi aðbúnað og kjör og afnámi barnaþrælkunar? Þetta er nú meiri undirlægjuhátturinn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnar Rafn Ingvarsson

Já þetta var stórundarleg frétt og alveg furðulegt að SA sendi frá sér svona ályktun og eins að fjölmiðlar sem vilja láta taka sig alvarlega, taki svona ályktun upp án þess að velta því fyrir sér hvað hún þýðir. Annars virðast fjölmiðlar þessa daganna vera yfirfullir af ekki fréttum. Fréttum (eða yfirlýsingum) sem er slengt fram án þess að sýna nokkra tilburði til að tala við þá sem málið snertir eða komast nærri sannleika. Heldur þreytandi og ber því miður ekki fjölmiðlamönnum á Íslandi fagurt vitni.

Unnar Rafn Ingvarsson, 3.4.2007 kl. 13:20

2 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Ég var mjög hissa þegar ég hlustaði á þetta í morgun.  Mér finnst þetta gott hjá bæajarstjórn Hafnafjarðar að hafa farið þessa leið.  Þessi meirihluti hefur staðið sig vel frá því að þeir tóku við fyrir fimmárum.  Ég sé að mitt atkvæði fór á réttan stað í fyrra því þeir hafa staðið við það sem þeir lofuðu.

Þórður Ingi Bjarnason, 3.4.2007 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir

RSS-straumar

Háskólinn á Hólum

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband